Merki Umhverfis- og orkustofnunar

Auglýsing: Styrkir til kaupa á nytjahjólum

Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, hefur ákveðið að veita sérstaka styrki til kaupa á nytjahjólum (e. cargo bikes) í gegnum Loftslags- og orkusjóð.

Styrkirnir geta numið allt að 200.000 krónum eða að hámarki 1/3 af kaupverði hvers hjóls. Um er að ræða tímabundna aðgerð sem felur í sér mikilvægt skref í átt að fjölbreyttari og sjálfbærari ferðamátum.

„Rafbílavæðingin skiptir máli, en til þess að ná alvöru árangri í loftslagsmálum þurfum við ekki síður að ýta undir breyttar ferðavenjur, vistvænni og fjölbreyttari ferðamáta sem gera líka samfélagið okkar skemmtilegra. Stuðningur við kaup á nytjahjólum er liður í þeirri stefnu ríkisstjórnarinnar,“ segir ráðherra í tilkynningu.

Nytjahjól eru sérstaklega hönnuð til að flytja farm og/eða farþega og geta í mörgum tilfellum komið í stað einkabíls í daglegum samgöngum. Þau stuðla þannig að minni bílaumferð og lægri losun gróðurhúsalofttegunda.

Til að fá styrk þarf hjólið að hafa verið sannanlega keypt 1. janúar 2025 eða síðar, og þurfa hjólin að uppfylla ákveðin skilyrði sem verða kynnt síðar. Styrkir verða veittir á meðan fjárheimildir eru til staðar. Önnur reiðhjól verða ekki styrkt af Loftslags-og orkusjóði.

Nánari upplýsingar um umsóknarferli og skilyrði verða birt á næstu vikum.

Tengt efni

Fleiri fréttir

Skoða
14. október 2026
Breytingar á styrkjum til kaupa á hreinorkubílum
Nýjar reglur um styrki til kaupa á hreinorkubílum taka gildi 1. nóvember 2026. Þá lækkar styrkur til kaupa á nýjum rafknúnum fólksbílum úr 500.000 kr. í 400.000 kr. og hámarksverð styrkhæfra fólksbíla lækkar úr 10 milljónum króna í 8 milljónir króna. Reglugerð nr. 1090/2026 um Loftslags- og orkusjóð var birt í Stjórnartíðindum 13. október og tekur gildi 1. nóvember. Hún leysir af hólmi reglugerð nr. 1566/2024 og tekur til allrar starfsemi sjóðsins. Helstu breytingar Lægri styrkur til fólksbíla. Frá og með 1. nóvember verður styrkur til kaupa á nýjum fólksbíl (M1) 400.000 kr. í stað 500.000 kr. Lægra verðþak fyrir fólksbíla. Eftir 1. nóvember 2026 verða fólksbílar sem kosta meira en 8 milljónir króna ekki styrkhæfir. Áður var hámarkið 10 milljónir króna. Lægri styrkur til bíla sem hafa áður verið skráðir erlendis. Bílar sem eru nýskráðir á Íslandi innan 12 mánaða frá fyrstu skráningu erlendis geta fengið allt að 320.000 kr. í stað 400.000 kr. Styrkir til sendibíla óbreyttir. Styrkur til sendibíla (N1) verður áfram 500.000 kr. og verðþakið 10 milljónir króna. Umsóknir vegna minni vörubíla færast á Ísland.is. Frá 1. janúar 2027 verður hægt að sækja um styrk vegna vörubíla í flokki N2 (3,5 til 7 tonn) á Ísland.is. Takmarkanir á útflutningi styrktra bíla. Óheimilt verður að flytja styrkt ökutæki úr landi innan þriggja ára frá því styrkur er veittur. Sé það gert getur sjóðurinn krafist endurgreiðslu. Hvað ræður styrkfjárhæðinni? Styrkfjárhæðin fyrir fólksbíla og sendibíla miðast við þann dag sem umsókn er samþykkt eftir nýskráningu bílsins. Umsóknir sem eru samþykktar fyrir 1. nóvember fá því styrk samkvæmt eldri reglum, að því gefnu að öll skilyrði séu uppfyllt. Áfram gildir að sækja þarf um styrk innan 12 mánaða frá nýskráningu, að hvert ökutæki er aðeins styrkt einu sinni og að styrkurinn er greiddur skráðum aðaleiganda.
6. október 2026
Drekasvæðið - Samantekt á niðurstöðum rannsókna
Umhverfis- og orkustofnun telur litlar líkur á að olía eða gas finnist í vinnanlegu magni á Drekasvæðinu norðaustur af Íslandi. Þetta er niðurstaða yfirferðar stofnunarinnar á áratugalöngum rannsóknum á svæðinu og er í samræmi við fyrri niðurstöður þeirra aðila sem hafa rannsakað svæðið. Drekasvæðið er hluti af Jan Mayen hrygg, sem liggur frá Jan Mayen í suður og inn fyrir íslenska lögsögu. Svæðið hefur lengi vakið áhuga almennings og atvinnulífs. Þar hefur verið talið að kunni að leynast jarðlög sem eru sambærileg þeim sem geyma olíu og gas á norska landgrunninu og er einnig að finna á austurströnd Grænlands. Á undanförnum árum hafa nokkur olíufélög rannsakað svæðið á grundvelli sérleyfa sem íslensk stjórnvöld veittu. Félögin framkvæmdu meðal annars hljóðendurvarpsmælingar, segulmælingar og aðrar jarðeðlisfræðilegar rannsóknir til að meta möguleika á olíu- og gaslindum. Flóknari jarðfræði en áður var talið Niðurstöður rannsókna benda til þess að jarðfræði svæðisins sé mun flóknari en áður hafði verið gert ráð fyrir. Þykk basaltlög, mikil eldvirkni og umfangsmiklar brotahreyfingar í jarðskorpunni gera erfitt að greina eldri jarðlög sem gætu innihaldið kolvetni. Jafnframt benda niðurstöður til þess að þau jarðlög sem hugsanlega hafa myndað eða geymt olíu og gas hafi orðið fyrir verulegum áhrifum jarðfræðilegra ferla í gegnum tíðina. Öll félögin sem fengu leyfi á svæðinu skiluðu þeim að lokum inn án þess að ráðast í rannsóknarboranir. ÍSOR staðfestir niðurstöðurnar Umhverfis- og orkustofnun fól ÍSOR að fara yfir gögn leyfishafanna og leggja fram sjálfstætt mat. ÍSOR komst að þeirri niðurstöðu að eldvirkni og hreyfingar í jarðskorpu hefðu líklega raskað mögulegum olíu- og gaslindum á stórum hluta Drekasvæðisins. Að mati stofnunarinnar eru meiri líkur á varðveislu kolvetna norðar á Jan Mayen hrygg en innan Drekasvæðisins sjálfs. Enn er óvissa til staðar Umhverfis- og orkustofnun bendir á að engin rannsóknarhola hafi verið boruð á svæðinu. Því sé ekki hægt að útiloka með fullri vissu að þar sé að finna olíu eða gas. Stofnunin telur þó að fyrirliggjandi gögn bendi til þess að líkurnar á vinnanlegum kolvetnislindum séu mjög litlar. Til að draga verulega úr þeirri óvissu sem enn er til staðar þyrfti að bora djúpa rannsóknarholu, líklega á bilinu 3 til 6 kílómetra djúpa, með það fyrir augum að kanna gerð, eðli og ástand jarðlaga á svæðinu. Gögn verða gerð aðgengileg Með gagnsæi að leiðarljósi áformar Umhverfis- og orkustofnun að gera gögn sem safnast hafa á rannsóknatímanum aðgengileg vísindasamfélaginu og almenningi eftir því sem lög heimila. Jafnframt mun stofnunin undirbúa reglur og viðmið um afhendingu rannsóknar- og mæligagna til þeirra aðila sem hafa áhuga á að rannsaka svæðið nánar. Í ljósi þeirrar þekkingar sem nú liggur fyrir telur Umhverfis- og orkustofnun ekki forsendur fyrir því að auglýsa eftir umsóknum um ný leyfi til rannsókna eða vinnslu kolvetnis á Drekasvæðinu.
2. október 2026
Óskað eftir upplýsingum um fyrirhugaðar framkvæmdir og starfsemi 2028-2033 sem gætu haft áhrif á vatnshlot – frestur framlengdur til 31. október
Umhverfis- og orkustofnun óskar eftir upplýsingum um fyrirhugaðar framkvæmdir og starfsemi á tímabilinu 2028-2033 sem kunna að hafa áhrif á vatnshlot og umhverfismarkmið þeirra. Eingöngu er hér átt við framkvæmdir þar sem líkur eru á því að sækja þurfi um heimild til breytingar vatnshlots skv. 18 gr. laga nr. 36/2011 um stjórn vatnamála. Upplýsingarnar verða nýttar við endurskoðun vatnaáætlunar Íslands. Framkvæmda- og rekstraraðilar eru hvattir til að senda inn upplýsingar um verkefni sem eru á undirbúnings-, hönnunar- eða áætlunarstigi, jafnvel þótt endanleg útfærsla liggi ekki fyrir eða óvíst sé hvort af framkvæmdinni verði. Mikilvægt fyrir gerð nýrrar vatnaáætlunar Umhverfis- og orkustofnun vinnur nú að endurskoðun vatnaáætlunar Íslands fyrir tímabilið 2028–2033. Áætlunin mun fara í opinbert 6 mánaða kynningarferli í lok árs 2026. Markmiðið með ofangreindri gagnaöflun er að fá sem besta yfirsýn yfir fyrirhugaðar framkvæmdir og umsvif sem munu líklega kalla á að sækja þurfi um heimild til breytingar vatnshlots á komandi árum. Endurskoðuð vatnaáætlun verður staðfest í byrjun árs 2028 samkvæmt lögum nr. 36/2011 um stjórn vatnamála. Fyrsta vatnaáætlun tók gildi í apríl 2022 og gildir til 2027. Framkvæmdir sem geta haft áhrif á vatnshlot Þegar framkvæmdir eða starfsemi geta haft áhrif á vatnshlot þarf að meta hvort þær geti komið í veg fyrir að umhverfismarkmið vatnshlotsins náist. Gera þarf svokallað áhrifamat á vatnshlot áður en leyfi eru veitt fyrir framkvæmdir eða starfsemi. Þar er metið hvort framkvæmdin/starfsemin geti komið í veg fyrir að umhverfismarkmið vatnshlots náist eða valdið því að ástand þess versni. Umhverfismarkmið vatnshlota eru lagalega bindandi. Upplýsingar birtar með vatnaáætlun Þær upplýsingar sem framkvæmdaraðilar setja fram í eyðublaðinu verða birtar óbreyttar í viðauka við drög að vatnaáætlun 2028–2033. Stofnunin leggur áherslu á að framkvæmd þarf ekki að vera tilgreind í vatnaáætlun til að síðar sé hægt að sækja um heimild til breytinga á vatnshloti. Hins vegar getur verið ávinningur af því að verkefni komi fram í áætluninni þar sem almenningi gefst þá kostur á að kynna sér þau og koma sjónarmiðum sínum á framfæri á kynningartíma áætlunarinnar. Skilafrestur Skilafrestur er til og með 31. október 2026. Upplýsingum skal skilað í gegnum stafrænt eyðublað á vef Umhverfis- og orkustofnunar. Lagagrunnur Endurskoðun vatnaáætlunar fer fram samkvæmt lögum nr. 36/2011 um stjórn vatnamála. Samkvæmt 20. gr. laganna skal meðal annars gera grein fyrir fyrirhuguðum framkvæmdum, sjálfbærum umsvifum og breytingum á vatnshlotum sem kunna að hafa áhrif á ástand vatns. Nánari upplýsingar Fyrir frekar upplýsingar er hægt að senda fyrirspurn á netfangið vatn@uos.is.

Kennitala: 700924-1650

Akureyri

Rangárvellir 2, hús 8, IS-603

Egilsstaðir

Tjarnarbraut 39B, IS-700

Reykjavík

Suðurlandsbraut 24, IS-108

Selfoss

Austurvegur 20, IS-800