Starfleyfisskyldu létt af 16 flokkum atvinnurekstrar

Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hefur undirritað reglugerð sem léttir starfsleyfisskyldu af 16 flokkum atvinnurekstrar, með breytingum á reglugerð um skráningarskyldan atvinnurekstur samkvæmt lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 830/2022 sem tekið hefur gildi. Þá hefur ráðherra lagt fram frumvarp um að auglýsingaskylda verði afnumin vegna 104 flokka atvinnustarfsemi.









