Merki Umhverfis- og orkustofnunar

Sýningin Fjaran laðaði að sér fjölda gesta

Mikilvægi vatnsauðlindarinnar

Sjómannadagurinn var haldinn hátíðlegur um land allt sunnudaginn 1. júní. Af því tilefni bauð Umhverfis- og orkustofnun, í samstarfi við Náttúruminjasafn Íslands, til lifandi og fræðandi sýningar í tengslum við Icewater-verkefnið, sem miðar að því að auka vitund í samfélaginu um mikilvægi þeirrar auðlindar sem vatnið er.

Lífríki vatnsins er fjölbreytt

Fjaran

Sýningin sem bar heitið Fjaran, beindi sjónum að lífríki fjörunnar, umgengni okkar mannanna og nauðsyn mengunarlausra haf- og vatnasvæða. Gestir fræddust um áhrif eiturefna á sjávarlíf, meðal annars í gegnum lifandi dæmi með nákuðunga og kræklinga og hvernig rusl á ströndum landsins hefur þróast undanfarin ár.

Smiðjur

Sérstök áhersla var lögð á þátttöku barna og fjölskyldna með fjölbreyttum smiðjum þar sem krakkar gátu blandað liti með ljósi, búið til ígulker úr ull og handleikið sjávarlíf.

Spennandi að fá að taka þátt

Móðurlíf Gaiu

Einnig var til sýnis listaverkið Móðurlíf Gaiu eftir listakonuna Katrínu Þorvaldsdóttur, en það varpar ljósi á stærsta lífkerfi jarðar á aðgengilegan og áhrifaríkan hátt.

Image

Tengt efni

Fleiri fréttir

Skoða
30. mars 2026
Losun Íslands 2024 og framtíðarhorfur
Heildarlosun gróðurhúsalofttegunda á Íslandi jókst um 1,7% milli 2023 og 2024. Losunin var 11,0 milljón tonn af CO₂-ígildum (CO₂-íg.) árið 2024 og hefur aukist um 6,2% frá árinu 1990. Losun Íslands má skipta í þrjá meginflokka: Samfélagslosun, landnotkun og staðbundinn iðnaður (ETS). Samfélagslosun Samfélagslosun Íslands jókst um 2,2% á milli 2023 og 2024. Hún var 2,9 milljón tonn CO₂-íg árið 2024. Umfangsmestu losunarflokkarnir voru vegasamgöngur, landbúnaður og fiskiskip. Gert er ráð fyrir að samdráttarkrafa Íslands í skuldbindingum gagnvart ESB verði að draga úr samfélagslosun um 41% árið 2030, miðað við árið 2005. Núgildandi krafa er 29%. Framreikningar sýna að Ísland standist líklega skuldbindingar fyrir tímabilið 2021-2025 þegar tekið er tillit til sveigjanleika milli skuldbindingarkerfa. Fyrir tímabilið 2026-2030 er hins vegar ólíklegt markmiðin náist, þrátt fyrir slíkan sveigjanleika. Áætlaður samdráttur í losun er um 28% árið 2030, miðað við losun ársins 2005. Tækifæri til samdráttar liggja í því að ráðast í frekari aðgerðir í loftslagsmálum. Það er hægt með því að fylgja eftir aðgerðum sem þegar eru til umræðu ásamt því að finna nýjar leiðir til samdráttar. Ef Ísland nær ekki skuldbindingum sínum ber að greiða fyrir það sem upp á vantar með kaupum á losunarheimildum frá öðrum ríkjum. Landnotkun Losun frá landnotkun var 6,2 milljón tonn CO₂-íg. árið 2024 og hefur dregist saman um tæp 7% frá 2008, að undanskildum síðustu þremur árum þar sem losun jókst lítillega. Meirihluti losunar frá landnotkun stafar af framræstu votlendi. Framreikningar sýna samdrátt í losun frá landnotkun yfir spátímabilið, vegna aukinnar endurheimtar votlendis, vaxandi bindingar í skóglendi og aukinnar landgræðslu. Útlit er fyrir að Ísland muni standast skuldbindingar sínar fyrir tímabilið 2021-2025. Staðbundinn iðnaður (ETS) Losun frá staðbundnum iðnaði á Íslandi (aðallega ál- og kísilver) sem fellur undir viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir (ETS) jókst um 4,2% frá árinu 2023 og 122% frá árinu 2005. Hún var 1,9 milljón tonn CO₂-íg. árið 2024. Samdráttur hefur átt sér stað í viðskiptakerfinu í ESB. Með þátttöku í kerfinu er ekki um að ræða beinar samdráttarkröfur fyrir rekstraraðila á Íslandi. Umhverfis- og orkustofnun skilaði nýlega til Evrópusambandsins landsskýrslu um losun gróðurhúsalofttegunda 1990-2024. Skýrslan er unnin í nánu samstarfi við Land og skóg sem ber ábyrgð á landnotkunarhluta bókhaldsins.

Kennitala: 700924-1650

Akureyri

Rangárvellir 2, hús 8, IS-603

Egilsstaðir

Tjarnarbraut 39B, IS-700

Reykjavík

Suðurlandsbraut 24, IS-108

Selfoss

Austurvegur 20, IS-800