Merki Umhverfis- og orkustofnunar

Umhverfis- og orkustofnun tekin til starfa

Sól skín á snævi þakinn fjallstopp

Umhverfis- og orkustofnun tók til starfa þann 1. janúar 2025.

Það má búast við einhverri skerðingu á þjónustu fyrstu dagana á nýju ári.

Heimasíða fyrir nýju stofnunina er í vinnslu. Á meðan verða heimasíður Umhverfisstofnunar og Orkustofnunar aðgengilegar.

Helstu verkefni

Umhverfis- og orkustofnun tekur við starfsemi Orkustofnunar og hluta af starfsemi Umhverfisstofnunar en þær hafa verið lagðar niður.

Umhverfis- og orkustofnun fer með stjórnsýslu loftslags-, umhverfis- og orkumála og málefni auðlindanýtingar. Þar á meðal eru verkefni í fjölbreyttum málaflokkum:

  • Efnamál
  • Eftirlit
  • Haf og vatn
  • Hringrásarhagkerfi
  • Loftgæði
  • Loftslags- og orkusjóður
  • Losunarheimildir
  • Orkuskipti
  • Orkunýtni

Fleiri fréttir

Skoða
4. nóvember 2026
Auglýsing: Styrkir til orkusparandi aðgerða í gróðurhúsum
Loftslags- og orkusjóður auglýsir eftir umsóknum um styrki til orkusparandi aðgerða í gróðurhúsum. Til úthlutunar eru allt að 150 m.kr. Að þessu sinni geta allir rekstraraðilar gróðurhúsa sem rækta plöntur til sölu sótt um styrk, en áður hafa styrkirnir einkum verið ætlaðir beingreiðsluþegum. Beingreiðsluþegar hafa þó áfram forgang við úthlutun. Einnig er nú hægt að sækja um styrk vegna búnaðar í nýjum gróðurhúsum og við stækkanir. Markmið styrkjanna er að draga úr orkunotkun í gróðurhúsa, auka rekstrarhagkvæmni og samkeppnishæfni ylræktar og losa raforku inn á kerfið að vetri, þegar framleiðslugeta vatnsaflskerfisins er hvað veikust. Styrkirnir geta meðal annars nýst til kaupa á nýjum LED-ljósabúnaði, tölvu- og stýribúnaði og gardínukerfum. Styrkhæfni verkefna og áherslur Lögaðilar sem reka gróðurhús á Íslandi og rækta þar plöntur til sölu, svo sem matjurtir, ber, blóm, pottaplöntur eða skógarplöntur, geta sótt um. Einstaklingar sem reka garðyrkjustöð á eigin kennitölu geta einnig sótt um ef þeir eru beingreiðsluþegar. Einungis er veittur styrkur til framkvæmda sem ekki eru hafnar þegar auglýsingin er birt. Styrkþegar skuldbinda sig jafnframt til að hafa styrktan búnað í notkun í að minnsta kosti fimm ár. Forgangsröðun umsókna Styrkjum verður úthlutað í eftirfarandi forgangsröð: Beingreiðsluþegar sem hafa ekki hlotið styrk til orkusparandi aðgerða í gróðurhúsum árin 2025 og 2026. Beingreiðsluþegar sem hlutu slíkan styrk árin 2025 eða 2026. Aðrir rekstraraðilar gróðurhúsa sem rækta plöntur til sölu. Beingreiðsluþegar eru framleiðendur sem nutu beingreiðslu vegna raforku til lýsingar á árinu 2026 samkvæmt reglugerð nr. 1273/2020 um stuðning við garðyrkju. Innan hvers forgangshóps eru umsóknir metnar út frá kostnaðarhagkvæmni og gæðum þeirra. Kostnaðarhagkvæmni vegur 80% í mati en gæði umsóknar 20%. Við mat á kostnaðarhagkvæmni er horft til áætlaðs orkusparnaðar miðað við hverja krónu í styrk. Styrkhlutfall og styrkfjárhæðir Styrkur nemur allt að 40% af styrkhæfum kostnaði án virðisaukaskatts, þó að hámarki 20 m.kr. á hvern umsækjanda. Styrkhæfur kostnaður er kaupverð búnaðar, flutningur hans og efni og vinna við uppsetningu. Í nýbyggingum og stækkunum er eingöngu búnaðurinn sjálfur styrktur, ekki uppsetning hans. Styrkur greiðist í allt að þremur hlutum: Allt að tvær framvindugreiðslur á verktíma miðað við útlagðan kostnað, samtals að hámarki 70% af styrkfjárhæð. Lokagreiðsla þegar búnaðurinn hefur verið tekinn í notkun og lokaskýrsla hefur verið samþykkt. Fylgigögn Með umsókn skal meðal annars fylgja: Upplýsingar um gróðurhúsið, ræktunina og núverandi búnað. Raforkunotkun síðustu 12 mánaða samkvæmt reikningum, eða áætluð notkun í nýframkvæmdum. Verkefnislýsing og útreikningur á áætluðum orkusparnaði í kWst á ári. Tíma- og verkáætlun, sundurliðuð kostnaðaráætlun og fjármögnunaráætlun. Tæknilýsing búnaðar og tilboð eða kostnaðarmat. Skriflegt samþykki eiganda ef umsækjandi á ekki gróðurhúsið. Umsóknarfrestur Opnað verður fyrir umsóknir 9. nóvember 2026 og umsóknarfrestur er til 9. desember 2026 kl. 15:00. Gert er ráð fyrir að úthlutun liggi fyrir innan sex vikna frá lokum umsóknarfrests. Fyrirspurnir má senda á orkusjodur@uos.is. Sótt er um á www.orkusjodur.is
29. október 2026
Reglur um kaupverð rafbíla við úthlutun styrkja
Stjórn Loftslags- og orkusjóðs hefur skilgreint hvernig kaupverð rafbíla er reiknað þegar metið er hvort þeir uppfylli skilyrði fyrir rafbílstyrk. Frá 1. nóvember 2026 þurfa fólksbílar að kosta minna en 8 milljónir króna og sendibílar áfram minna en 10 milljónir króna til að vera styrkhæfir, samkvæmt reglugerð nr. 1090/2026 um Loftslags- og orkusjóð. Hvað telst til kaupverðs? Við mat á því hvort bíll sé undir hámarksverði gilda eftirfarandi reglur: Miðað er við það verð sem kaupandi greiðir fyrir bílinn samkvæmt reikningi eða kaupsamningi. Allur búnaður sem fylgir bílnum úr framleiðslu telst með, bæði staðalbúnaður og búnaður sem valinn er við pöntun. Sama á við um dekkin sem fylgja bílnum, flutningsgjöld, önnur gjöld seljanda og virðisaukaskatt. Aukahlutir sem bætt er við eftir framleiðslu, til dæmis mottur, aukasett af dekkjum eða dráttarbeisli, teljast ekki með. Opinber gjöld vegna nýskráningar teljast heldur ekki með. Afsláttur sem seljandi veitir dregst frá. Styrkurinn og verð bíls sem tekinn er upp í kaupin dragast ekki frá. Fyrir bíla sem hafa áður verið skráðir erlendis gildir heildarverð með öllu sem fylgir bílnum. Upplýsingar með umsókn Þegar sótt er um rafbílastyrk á Ísland.is staðfestir umsækjandi að kaupverðið sé gefið upp í samræmi við skilgreininguna. Loftslags- og orkusjóður getur óskað eftir reikningi, kaupsamningi og öðrum gögnum um kaupin og krafist endurgreiðslu styrks ef upplýsingar reynast rangar eða villandi. Nánar um skilgreininguna og svör við algengum spurningum.
22. október 2026
Loftslagsdagurinn 2026 fyrstur íslenskra viðburða til að hljóta Svansvottun
Loftslagsdagurinn 2026 er fyrsti viðburðurinn á Íslandi sem hlýtur Svansvottun. Markmið Svansvottuninnar er að draga úr umhverfisáhrifum viðburðarins. Gestir Loftslagsdagsins geta meðal annars gætt sér á lífrænum veitingum og nýtt Hopp sér að kostnaðarlausu til að komast til og frá viðburðinum. Loftslagsdagurinn fer fram þann 28. október í Svansvottuðu ráðstefnurými Hörpu. Hvað felst í Svansvottun Loftslagsdagsins? Svansvottun Loftslagsdagsins 2026 staðfestir að viðburðurinn uppfyllir metnaðarfullar kröfur um umhverfisáhrif og sjálfbærni. Þegar viðburðir eru Svansvottaðir er rýnt í alla þætti í skipulagningu og framkvæmd þeirra sem geta haft neikvæð áhrif á umhverfið. Skipuleggjendur viðburða þurfa að uppfylla fjölbreyttar kröfur til þess að minnka orkunotkun, losun gróðurhúsalofttegunda, sóun, úrgang og notkun skaðlegra efna. Dæmi um aðgerðir á Loftslagsdaginn 2026: Aukið framboð af lífrænum hráefnum og grænmetis- eða grænkeraveitingum eru á boðstólnum, fjölda rétta haldið í lágmarki til þess að minnka matarsóun og enginn einnota borðbúnaður. Lokaðir kælar á veitingasvæði til að minnka orkunotkun. Orkusparandi hljóð- og myndkerfi. Endurhlaðaðanlegar rafhlöður í rafmagnstækjum. Takmörkun á útprentuðum ráðstefnugögnum og strangar kröfur um gjafapoka eða annan varning. Endurnýtanlegar skreytingar. Umhverfisvottaður salernispappír og ræstivörur. Sýnileg og vel merkt flokkunaraðstaða fyrir þátttakendur og starfsfólk. Gestir Hoppa á viðburðinn Allir gestir á Loftslagsdaginn 2026 hafa kost á því að nota rafskutlur eða rafmagnsbíla frá Hopp til þess að komast til og frá Hörpu án endurgjalds. Stór liður í Svansvottunarferli viðburða er að innleiða aðgerðir sem minnka losun gróðurhúsalofttegunda. Einn af möguleikunum til að ná því markmiði er að bjóða þátttakendum frímiða í almenningssamgöngur. Mörg tækifæri til umbóta á ráðstefnum og fundum Mikill fjöldi ráðstefna og stórra funda er haldinn á Íslandi á ári hverju. Umhverfisáhrif viðburðanna geta verið talsverð og það eru fjölmörg tækifæri til umbóta. Væri til dæmis hægt að sleppa óþarfa gjafapokum? draga úr prentun dagskráa og bæklinga? minnka magn matar og drykkja til að draga úr matarsóun? hvetja þátttakendur til að velja umhverfisvænni ferðamáta? Með því að skoða og fjalla um umhverfisáhrif viðburða eykst vitund starfsfólks og gesta, fyrirtæki geta bætt ímynd sína og það skapar eftirspurn í samfélaginu eftir þjónustu og lausnum sem taka mið af umhverfinu. „Það er mikilvægt fyrir okkur hjá Umhverfis- og orkustofnun að sýna gott fordæmi og halda umhverfisvænni viðburði. Svansvottunarferlið reyndist frábært verkfæri á þessari vegferð. Nú skorum við bara á aðrar stofnanir og fyrirtæki að gera það sama“ segir Sigurður Ingi Friðleifsson, sviðsstjóri loftslags og orkuskipta. Umhverfisvænna viðburðahald í Hörpu Loftslagsdagurinn 2026 fer fram í Hörpu. Ráðstefnurými hússins hlaut Svansvottun árið 2022 og lagði þar með grunn að umhverfisvænna viðburðarhaldi á Íslandi. Um Loftslagsdaginn 2026 Loftslagsdagurinn 2026 fer fram 28. október kl. 9–14 í Norðurljósasal Hörpu og í beinu streymi. Dagskrá og skráning eru á loftslagsdagurinn.is. Þema dagsins í ár er öryggi og loftslagsmál og verður meðal annars fjallað um tengsl loftslagsbreytinga við samfélagsöryggi, fæðuöryggi og orkuöryggi. Loftslagsdagurinn er haldinn í fimmta sinn árið 2026 og er vettvangur fyrir almenning, atvinnulíf, stjórnvöld, vísindasamfélagið og aðra sem vilja fræðast um stöðu og áskoranir í loftslagsmálum. Hvað er Svanmerkið? Svansmerkið er opinbert umhverfismerki Norðurlandanna sem tekur til alls lífsferils vöru og þjónustu. Svansvottuð vara er betri fyrir umhverfið og heilsuna. Svansvottun er auðveld leið til að miðla umhverfisstarfi fyrirtækis og sendir neytendum skýr skilaboð um að fyrirtækið vinni markvisst að því að draga úr umhverfisáhrifum í öllum lífsferli vörunnar. Svansmerkið er áreiðanleg vottun sem 93% Íslendinga þekkja.

Kennitala: 700924-1650

Akureyri

Rangárvellir 2, hús 8, IS-603

Egilsstaðir

Tjarnarbraut 39B, IS-700

Reykjavík

Suðurlandsbraut 24, IS-108

Selfoss

Austurvegur 20, IS-800