Merki Umhverfis- og orkustofnunar

Urðun á undanhaldi?

Jákvæð þróun á Íslandi

Urðun á urðunarstöðum á Íslandi hefur dregist saman á undanförnum árum. Það er jákvæð þróun í úrgangsstjórnun landsins. Stjórnvöld hafa sett markmið um að draga verulega úr magni heimilisúrgangs sem er urðaður fyrir árið 2035.  

Hvað er heimilisúrgangur? 

Heimilisúrgangur er úrgangur frá heimilum og úrgangur af öðrum uppruna sem er svipaður að eðli og samsetningu og úrgangur frá heimilum. Þar með fellur heimilisúrgangur einnig til hjá fyrirtækjum og stofnunum. Þetta er blandaður heimilisúrgangur (óflokkað almennt sorp), lífúrgangur (m.a. matarleifar og garðaúrgangur) sem og flokkaður úrgangur svo sem plast, pappi, gler, málmar o.s.frv. Ólöglegt er að urða flokkaðan heimilisúrgang og er um 90% þess sem urðað er blandaður heimilisúrgangur.

Image

Mynd: Magn úrgangs sem urðaður er á Íslandi í tonnum. Prósenturnar þýða hlutfall heimilisúrgangs sem var urðað það árið. Annar úrgangur er rekstrarúrgangur sem urðaður var á Íslandi. Myndin sýnir ekki það magn úrgangs sem var flutt erlendis til urðunar sem er aðallega sértækur rekstrarúrgangur en einnig aðrar gerðir úrgangs.

Heimilisúrgangur nýttur í orkuvinnslu 

Meginástæða þess að dregið hefur úr urðun heimilisúrgangs er sú staðreynd að mikið magn blandaðs heimilisúrgangs er nú flutt erlendis í brennslu þar sem orkan nýtist til húshitunar. Að endurnýta úrgang til orkuvinnslu er alltaf betri kostur en urðun. 

Samevrópsk töluleg markmið 

Evrópusambandið hefur sett markmið um að árið 2035 verði að hámarki 10% af þeim heimilisúrgangi sem fellur til urðaður. Það markmið er innleitt í reglugerð nr. 803/2023 um meðhöndlun úrgangs. Einnig tengist markmiðið aðgerðaáætlun Íslands í loftslagsmálum (2020), því meðhöndlun úrgangs veldur 7% af allri samfélagslosun gróðurhúsalofttegunda á Íslandi. Með því að minnka urðun, minnkar þessi losun. 

Vinnum saman að því að draga úr neyslu 

Áhersla hringrásarhagkerfisins er að draga sem mest úr myndun úrgangs og síðan sjá til þess að sem mest af þeim úrgangi sem verður til komist í endurnotkun eða til endurvinnslu. Svo það náist þurfa neytendur og framleiðendur að vinna saman með því að draga úr neyslu og sjá til þess að það sem fellur til sé auðendurvinnanlegt. Magn heimilisúrgangs sem fellur til hefur ekki minnkað síðustu ár svo ekki er hægt að sjá að neysla sé almennt að dragast saman. Síaukið magn fer þó í einhverskonar endurnýtingu í stað förgunar sem er vel.

Umhverfis- og orkustofnun hvetur alla landsmenn til að halda áfram að standa saman gegn sóun, minnka neyslu, flokka vel og vinna sameiginlega að því að draga enn frekar úr urðun úrgangs. Upp, upp og áfram!

Fleiri fréttir

Skoða
6. janúar 2026
Nýtt mælaborð Raforkueftirlitsins lítur dagsins ljós  
Raforkueftirlitið hefur tekið í notkun nýtt sjálfvirkt mælaborð Raforkuvísa sem markar tímamót í framsetningu upplýsinga. Með mælaborðinu birtast nýjar upplýsingar mun tíðar, yfirsýn yfir breytingar og þróun eykst til muna, og styður þessi breyting við raforkumarkaðinn, almenning og stjórnvöld með gagnsærri framsetningu. Kerfið byggir á umfangsmikilli sjálfvirkni sem eykur afköst starfsmanna og veitir svigrúm fyrir dýpri og tíðari greiningar. Þannig skapast ráðrúm til að miðla niðurstöðum oftar en áður. Markmiðið er að mælaborðið verði smám saman að fullu sjálfvirkt og að skýrslur byggi á nýjustu og sem áreiðanlegustu gögnum á hverjum tíma.   Fjöldi nýjunga Með innleiðingu nýja mælaborðsins breytist einnig birtingarhraði gagna. Skammtímamarkaðsverð verða nú uppfærð vikulega og önnur raforkuverð, ásamt upplýsingum um framleiðslu og notkun, birt mánaðarlega. Upplýsingar um truflanir verða svo teknar saman árlega og birtar af START hópnum á truflanir.is. Í stað þess að notendur þurfi að bíða eftir ársfjórðungslegum samantektum verður nú hægt að fylgjast með þróuninni talsvert nær rauntíma.  Í fyrsta sinn eru markaðsverð raforku tekin saman og birt á einum stað hjá Raforkueftirlitinu. Á mælaborðinu má meðal annars sjá grunnorkuverð, stundarmánaðarverð, meðal jöfnunarorkuverð og fleira. Einnig eru birt dagleg meðaltöl fyrir skammtímaverð, þar á meðal fyrir Elmu, Vonarskarð og jöfnunarorkumarkað Landsnets. Þetta gerir samanburð einfaldari, styrkir upplýsingaflæði og stuðlar að gagnsærri umræðu um verðmyndun.  Að auki er nýtt yfirlit yfir gjaldskrár sérleyfisfyrirtækja. Raforkueftirlitið birtir nú vegið meðalverð gjaldskráa dreifiveitna ásamt gjaldskrá flutningsfyrirtækisins. Hægt er að skoða gjöld bæði verðbætt með vísitölu og á verðlagi hvers árs. Með þessu verður mun auðveldara að fylgjast með þróun kostnaðar og meta breytingar yfir lengri tíma.  Horft fram á veginn Nýjustu Raforkuvísar sýna jafnframt að staða og horfur raforkuöryggis á fjórða ársfjórðungi 2025 og 2026 hafa áfram batnað. Mat á raforkuöryggi byggir á spám um framboð og eftirspurn. Núverandi stórnotkun hefur dregist saman tímabundið, allra helst vegna samdráttar á málmframleiðslu, og þar með er meira framboð til staðar en undir eðlilegum kringumstæðum.  Nýja mælaborðið er aðeins fyrsta skrefið í lengra ferðalagi. Á næstu mánuðum verður áfram unnið að aukinni sjálfvirkni, skýrari framsetningu gagna og öðrum greiningum Raforkueftirlitsins. Með þessu styrkir Raforkueftirlitið hlutverk sitt sem miðlari áreiðanlegra upplýsinga og leggur grunn að betri, gagnsærri og upplýstri ákvarðanatöku í orkumálum landsins. 
7. janúar 2026
Námskeið í meðferð notendaleyfisskyldra plöntuverndarvara og útrýmingarefna
Endurmenntun Landbúnaðarháskóla Íslands heldur námskeið í meðferð notendaleyfisskyldra plöntuverndarvara og útrýmingarefna dagana 19. febrúar til 12. mars 2026.  Námskeiðið verður kennt í fjarkennslu. Námskeiðið er fyrir þau sem hyggjast sækja um eða endurnýja notendaleyfi fyrir: Plöntuverndarvörum í landbúnaði og garðyrkju, þar með talið garðaúðun Útrýmingarefnum við eyðingu meindýra Hvort tveggja af ofangreindu Einnig er í boði að ljúka einungis námshluta fyrir ábyrgðaraðila í markaðssetningu notendaleyfisskyldra plöntuverndarvara og útrýmingarefna. Þessi kostur hentar aðilum sem starfa sinna vegna hyggjast taka að sér hlutverk ábyrgðaraðila hjá dreifingaraðila notendaleyfisskyldra vara. Námskrá námskeiðsins byggist á ákvæðum í reglugerð um meðferð plöntuverndarvara og útrýmingarefna. Til þess að ljúka náminu þarf að standast próf í lok námskeiðsins. Að námi loknu þurfa þau sem vilja öðlast réttindi til að kaupa og nota notendaleyfisskyldar plöntuverndarvörur og/eða útrýmingarefni að sækja um notendaleyfi til Umhverfis- og orkustofnunar. Dreifandi notendaleyfisskyldra vara skal tilnefna ábyrgðaraðila í gegnum Island.is. Skráning og nánari upplýsingar um námskeiðið eru að finna á heimasíðu Endurmenntunar Landbúnaðarháskóla Íslands. Umsóknarfrestur er til 13. febrúar 2026.
7. janúar 2026
Námskeið í sóttvörnum vegna húðrofs - febrúar 2026
Umhverfis- og orkustofnun stendur fyrir námskeiðum í sóttvörnum fyrir þau sem framkvæma hvers kyns húðrof, svo sem húðgötun, húðflúrun, fegrunarflúrun og nálastungur. Námskeiðið er skylda fyrir þau sem hafa ekki lokið námi á heilbrigðissviði sem felur í sér fræðslu um smitgát og sóttvarnir. Frá og með 1. janúar 2026 þurfa allir sem stunda húðrof að geta framvísað staðfestingu þess efnis að þeir hafi setið námskeiðið eða séu með tilskylda menntun á heilbrigðissviði. Sjá nánar í 2. mgr. 34. gr. rg. nr. 903/2024 um hollustuhætti. Information on the course in English Um námskeiðið Á námskeiðinu verður farið yfir alla þætti sem snúa að framkvæmd húðrofs með sérstaka áherslu á sóttvarnir og hreinlæti. Námskeiðið er blanda af fyrirlestrum og sýnikennslu. Í lok námskeiðs þurfa þátttakendur að standast hæfnispróf. Nauðsynlegt er að hafa meðferðis eigið snjalltæki til að taka hæfnisprófið á. Kennarar á námskeiðinu eru: Ása S. Atladóttir, hjúkrunarfræðingur Brynjar Björnsson, húðflúrari Ísak S. Bragason, teymisstjóri í teymi efnamála hjá Umhverfis- og orkustofnun Sigríður Kristinsdóttir, teymisstjóri í teymi eftirlits hjá Umhverfis- og orkustofnun Stella Hrönn Jóhannsdóttir, sérfræðingur hollustuhátta hjá Umhverfis- og orkustofnun Dagsetningar Mánudagurinn 9. febrúar frá kl. 9 – 16. Kennt á íslensku. Síðasti skráningardagur er 2. febrúar. Síðasti greiðsludagur 8. febrúar.   Föstudagurinn 13. febrúar frá kl. 9 – 16. Kennt á ensku. Síðasti skráningardagur er 5. febrúar. Síðasti greiðsludagur 11. febrúar. Information on the course in English Námskeiðsgjald Námskeiðsgjald er 49.900 kr. Greiðsluseðill verður sendur í heimabanka umsækjanda og afrit af reikningi á mínar síður á island.is. Staðsetning Námskeiðið verður haldið á Hótel Reykjavík Grand, Sigtúni 28, 105 Reykjavík. Skráning Skráning fer fram á https://gogn.ust.is/ Skráning er staðfest þegar námskeiðsgjöld hafa verið greidd. Lágmarksfjöldi Lágmarksfjöldi á námskeiðið er 20 manns. Námskeiðið fellur niður ef ekki næst lágmarks þátttaka. Námskeiðið er fyrir þau sem framkvæma nálastungur, fegrunarflúrun, húðgötun og húðflúrun.

Kennitala: 700924-1650

Akureyri

Rangárvellir 2, hús 8, IS-603

Reykjavík

Suðurlandsbraut 24, IS-108

Selfoss

Austurvegur 20, IS-800