Urðunarmarkmið í augsýn

Vísbendingar eru um að Íslendingar séu að henda minna af rusli, bætt flokkun sé að skila árangri og að urðunarmarkmið fyrir árið 2035 sé innan seilingar. Magn þess sem við hendum getur hins vegar verið mjög breytilegt milli ára, aðallega vegna úrgangsstraums frá mannvirkjagerð, og endurvinnsluhlutfall heimilisúrgangs tók jákvætt stökk milli ára.









