Til baka
11. júní 2025
Úthlutun styrkja -Strandhreinsun Íslands

Umhverfis- og orkustofnun hefur úthlutað þeim aðilum sem sóttu um styrki til verkefna sem felast í hreinsun á strandlengju Íslands. Það bárust 9 umsóknir um styrki. Heildarstyrkupphæð er 30 milljónir króna.
Styrkirnir eru veittir á grundvelli aðgerðar 17 í aðgerðaráætlun umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins í plastmálefnum Úr viðjum plastsins.
Tilgangurinn með styrkveitingunum er sá að strandlengja Íslands verði hreinsuð með skipulegum hætti, hreinsuðum ströndum verði haldið við, að efla vitundarvakningu hjá almenningi um mikilvægi strandhreinsana og virkja áhugasama aðila til þátttöku í átaki um hreinsun strandlengjunnar.
Eftirtaldir aðilar hlutu styrk:
- Blái herinn - Upphæð: 2.820.000.-
- Hollvarðasamtök Fjölbrautaskóla Suðurlands - Upphæð: 250.000.-
- Ocean Missions - Upphæð: 2.940.000.-
- SEEDS - Upphæð: 5.820.000.-
- Umhverfissamtök Austur-Skaftafellssýslu - Upphæð: 880.000.-
- Ungmennafélagið Fram - Skagaströnd - Upphæð: 650.000.-
- Veraldavinir - Upphæð: 16.640.000.-