Urgangur.is liggur tímabundið niðri. Bein leið í mælaborð úrgangstölfræði.

Merki Umhverfis- og orkustofnunar

Úthlutun styrkja: Strandhreinsun Íslands 2026

Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, hefur ákveðið að  úthluta 18 styrkjum til verkefna sem felast í hreinsun á strandlengju Íslands á grundvelli tillögu Umhverfis- og orkustofnunar.

Það bárust 24 umsóknir um styrki. Heildarstyrkupphæð er 29.854.000 kr. 

Eftirtaldir aðilar hlutu styrk:

Umsækjandi Fjöldi kílómetra Styrkupphæð (kr) 
Blái herinn 45 2.379.000 
Food and Traditions ehf 1,5 55.000 
Fljótbakki ehf. 146.000 
Grunnskóli Grundarfjarðar og Lionsklúbbur Grundafjarðar 15 550.000 
Grunnskóli Hornarfjarðar 10 366.000 
Knattspyrnudeild UMF Skallagríms 6,5 238.000 
Kvenfélagið Vaka 10 366.000 
Litlu Hólar sf 4,5 165.000 
Ocean Missions 75 3.385.000 
Samtök kvenna af erlendum uppruna á Íslandi 147.000 
Skeggi ehf 130 4.078.000 
Skelegg ehf 23 842.000 
Skógræktarfélag Álftafjarðar 256.000 
Strandhreinsun Íslands 120 4.160.000 
Ungmennafélagið Einherji 16 586.000 
Ungmennafélagið Fram 20 733.000 
Ungmennafélagið Sindri 11 403.000 
Veraldavinir 510 10.999.000 

Styrkirnir eru veittir á grundvelli aðgerðar 17 í aðgerðaráætlun umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins í plastmálefnum Úr viðjum plastsins, sem hófst árið 2021 og stóð til 2025. Verkefnið var framlengt um þrjú ár og verður í gildi til ársins 2028. 

Helstu markmið með veitingu styrkjanna er að strandlengja Íslands verði hreinsuð með skipulegum hætti, hreinsuðum ströndum verði haldið við, að efla vitundarvakningu hjá almenningi um mikilvægi strandhreinsana og virkja áhugasama aðila til þátttöku í átaki um hreinsun strandlengjunnar. 

Fleiri fréttir

Skoða
9. júlí 2026
Töluverður loftslagsábati með stuðningi Loftslags- og orkusjóðs 2025
Olíusparnaður vegna verkefna sem hlutu styrk úr Loftslags- og orkusjóði árið 2025 nam um 23 milljónum lítra á ársgrundvelli að því er fram kemur í ársskýrslu sjóðsins sem nú er komin út. Þá nam nettó raforkusparnaður vegna styrktra verkefna 59 GWst á ári, sem  samsvarar árlegri raforkunotkun um 15.000 heimila eða um 20.000 rafbíla. Mikill árangur náðist í orkuskiptum og orkunýtni á þessu fyrsta heila starfsári Loftslags- og orkusjóðs og má, að því er segir í skýrslunni, áætla að sjóðurinn hafi stuðlað að olíu- og raforkusparnaði til 15 ára, sem má verðmeta til 93 milljarða króna á núvirði. Markaðsvirði olíu- og raforkusparnaðar vegna styrktra verkefna er metið rúmlega áttfalt á við kostnað sjóðsins. Þar af er eru samkeppnisverkefnin metin langsamlegast arðbærust, en ábati vegna þeirra er metinn um 24-faldur á við kostnað sjóðsins. Alls auglýsti sjóðurinn styrki til sjö átaksverkefna í samkeppnishluta sjóðsins fyrir um 3,6 milljarða og var eftirspurn eftir styrkjum rúmlega fjórföld á við auglýsta upphæð. Ábati vegna beinna styrkja til ökutækja var tæplega fjórfaldur á við kostnað sjóðsins og þar af er ábati vegna styrkja til hóp- og vörubifreiða metinn um 80% meiri en vegna styrkja til fólks- og sendibíla. Alls námu skráðar skuldbindingar Loftslags- og orkusjóðs vegna beinna styrkja til ökutækja 8,6 ma.kr., en sjóðurinn styrkti á árinu 7.199 ökutæki, þar af 6.724 fólks- og sendibíla, 453 hóp- og vörubifreiðar og 22 nytjahjól. Þá nam samdráttur í losun gróðurhúsalofttegunda vegna styrktra verkefna um 2% af samfélagslosun Íslands árið 2024.
25. júní 2026
Nýtt mælaborð veitir betri yfirsýn yfir rekstur raforkukerfisins
Raforkueftirlitið hefur birt mælaborð sem sýnir þróun lykilstærða hjá sérleyfisfyrirtækjum í flutningi og dreifingu raforku. Markmiðið er að auka aðgengi að upplýsingum um rekstur raforkukerfisins og styrkja gagnsæi í eftirliti. Í mælaborðinu er hægt að skoða þróun meðal annars á eignum, fjárfestingum, rekstrarkostnaði og afhendingu raforku. Notendur geta síað gögn eftir fyrirtækjum, tímabilum og verðlagi til að fá betri yfirsýn yfir rekstur einstakra fyrirtækja og raforkukerfisins í heild. Mælaborðið verður jafnframt grunnur að fyrirhugaðri reglubundinni skýrslugjöf Raforkueftirlitsins um fjárhags- og tækniupplýsingar sérleyfisfyrirtækja. Fjárfestingar í raforkukerfinu hafa aukist Mælaborðið sýnir að fjárfestingar í íslenska raforkukerfinu hafa verið talsverðar undanfarin 14 ár. Árið 2024 nam eignastofn sérleyfisfyrirtækjanna um 291 milljörðum króna, þar af voru eignir Landsnets metnar á um 149 milljarða króna. Til samanburðar nam eignastofn sérleyfisfyrirtækja um 139 milljörðum króna árið 2011, þar af um 82 milljörða króna hjá Landsneti. Niðurstöður benda til þess að verðmæti eignastofnsins hafi því meira en tvöfaldast á tímabilinu. Rekstrarkostnaður hefur hækkað hraðar en afhending raforku Samanlagður rekstrarkostnaður raforkukerfisins nam um 156 milljörðum króna á tímabilinu 2011 og 2024. Árlegur meðalvöxtur rekstrarkostnaðar var um 5,9%. Á sama tímabili nam heildarafhending raforku um 300 TWst. Árlegur meðalvöxtur kerfisins var um 1,1%. Gagnsæi í eftirliti Með birtingu mælaborðsins fá bæði fyrirtæki, stjórnvöld og notendur raforkukerfisins betra aðgengi að upplýsingum um rekstur og þróun raforkukerfisins á Íslandi. Það styrkir gagnsæi í eftirliti og skapar betri forsendur fyrir upplýsta ákvarðanatöku. Opna mælaborðið
24. júní 2026
Auglýsing: Styrkir til uppbyggingar hleðsluinnviða við gististaði
Loftslags- og orkusjóður auglýsir eftir umsóknum um styrki til uppbyggingar hleðsluinnviða við gististaði á Íslandi. Markmið átaksins er að fjölga stöðum þar sem gestir hafa aðgang að hleðslu rafbíla og styðja þannig við orkuskipti í ferðaþjónustu og loftslagsmarkmið stjórnvalda. Markmið Styrkjunum er ætlað að: Fjölga gististöðum þar sem gestir hafa aðgang að hleðsluinnviðum fyrir rafbíla. Styðja við rafvæðingu bílaleiguflotans og hvetja ferðamenn til að velja rafbíla fremur en bíla sem knúnir eru jarðefnaeldsneyti. Stuðla að þéttara neti og tryggari hleðsluaðstöðu við gististaði um land allt. Hverjir geta sótt um Umsækjandi skal vera lögaðili. Tvenns konar aðilar geta sótt um: Rekstrarleyfishafi gististaðar af tegund a (hótel) eða b (stærra gistiheimili) samkvæmt 4. gr. reglugerðar nr. 1277/2016, með gilt rekstrarleyfi. Rekstraraðili hleðslustöðva sem sækir um í samvinnu við slíkan gististað. Þá skal samstarfssamningur liggja fyrir. Einstaklingar, A-hluta ríkisaðilar og lögaðilar í vanskilum við ríkissjóð geta ekki sótt um. Sjá nánar í handbók. Heildarfjárhæð til úthlutunar Heildarfjárhæð til úthlutunar er allt að 50 m.kr. Styrkhlutfall og hámark Styrkhlutfall er allt að 33% af styrkhæfum kostnaði án virðisaukaskatts. Hámarksfjárhæð styrks á hvern gististað: 1 m.kr. Ekkert lágmark er á styrkupphæð. Mótframlag umsækjanda skal vera að lágmarki 67% af styrkhæfum kostnaði. Helstu skilyrði verkefna Verkefnið er við gististað af tegund a eða b samkvæmt 4. gr. reglugerðar nr. 1277/2016 sem rekinn er með gilt rekstrarleyfi. Sé umsækjandi rekstraraðili hleðslustöðva liggur fyrir samstarfssamningur við rekstrarleyfishafa gististaðarins. Verkefnið felur í sér uppsetningu að lágmarki tveggja nýrra hleðslustöðva (2x 22 kW). Eingöngu eru styrkt ný verkefni. Uppsetning hleðslustöðvanna má ekki vera hafin þegar sótt er um. Hleðslustöðvarnar skulu vera aðgengilegar gestum gististaðarins. Búnaður skal uppfylla viðeigandi öryggis- og CE-kröfur sem gilda á EES-svæðinu. Vinna við raflagnir og tengingar skal unnin af löggiltum rafverktaka og vera í samræmi við leiðbeiningar Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar um hleðslu rafbíla og raflagnir. Styrkþegi skuldbindur sig til að reka hleðslustöðvarnar í að lágmarki fimm ár frá gangsetningu. Styrkur greiðist í einni greiðslu eftir að hleðslustöðvarnar eru komnar í rekstur og lokaskýrsla hefur verið samþykkt. Umsóknarfrestur Opnað verður fyrir umsóknir 1. júlí 2026 og lokafrestur er til 15. október 2026 kl. 15:00. Umsóknir skulu berast í gegnum rafrænt umsóknarkerfi á orkusjodur.is. Nánari upplýsingar Nánari lýsing á umsóknarferli, kröfum, fylgigögnum og matsferli er í handbók sem fylgir þessari auglýsingu. Svör við almennum fyrirspurnum verða birt í „Spurt og svarað“ á vef sjóðsins. Öðrum spurningum má beina til orkusjodur@uos.is.

Kennitala: 700924-1650

Akureyri

Rangárvellir 2, hús 8, IS-603

Egilsstaðir

Tjarnarbraut 39B, IS-700

Reykjavík

Suðurlandsbraut 24, IS-108

Selfoss

Austurvegur 20, IS-800