Merki Umhverfis- og orkustofnunar

Leiðbeiningar um kolefnisjöfnun

Fyrir ríkisstofnanir og sveitarfélög

Fyrsta skrefið að draga úr losun

Áður en þú kolefnisjafnar er mikilvægt að þú gerir það sem þú getur til að draga úr losun. Kolefnisjöfnun kemur ekki í stað samdráttar í losun.

Kolefnisjöfnun er leið til að bæta fyrir eigin losun gróðurhúsalofttegunda með því að fjármagna loftslagsverkefni annars staðar. Kolefnisjöfnunarverkefni draga úr losun eða binda kolefni úr andrúmslofti til að jafna út áhrif frá rekstri.

Hvernig virkar kolefnisjöfnun?

Kolefnisjöfnun felst í því að kaupa kolefniseiningar frá verkefnum sem:

  • Draga úr losun, til dæmis með því að auka orkunýtni.
  • Binda kolefni, til dæmis með skógrækt, landgræðslu, steinrenning o.fl.
  • Koma í veg fyrir losun, til dæmis með því að endurheimta votlendi.

Ein kolefniseining jafngildir einu tonni af koldíoxíði sem hefur verið eytt eða bundið. Þegar eining er notuð til að jafna losun þarf að afskrá hana svo hún sé aldrei notuð aftur. Það er gert með því að birta yfirlýsingu um að einingin hafi verið notuð, til dæmis í ársskýrslu, eða með því að afskrá hana í kolefnisskrá.

Reiknaðu losun frá starfseminni

Áður en þú kolefnisjafnar þarftu að vita hver losun þín er.

Umhverfis- og orkustofnun bendir ríkisstofnunum á að nota grænt bókhald. Þar er að finna losunarstuðla fyrir samgöngur, orkunotkun og úrgang sem tryggja samræmi í útreikningum.

Sveitarfélög geta notað verkfærakistu sveitarfélaga á loftslagsstefna.is.

Kröfur um gæði kolefnisjöfnunar

Þegar kolefniseiningar eru keyptar er mikilvægt að velja verkefni sem skila raunverulegum árangri. Umhverfis- og orkustofnun mælir með að fylgja þessum viðmiðum:

  1. Raunverulegur árangur: Sýna þarf fram á að verkefnið fari raunverulega fram.
  2. Mælanlegur árangur: Hægt er að mæla bindingu eða samdrátt með viðurkenndum aðferðum.
  3. Varanlegur árangur: Tryggja þarf að árangurinn gangi ekki til baka.
  4. Viðbót: Loftslagsávinningurinn hefði ekki orðið án fjármögnunar frá sölu eininganna.
  5. Engin tvítalning: Hver eining er aðeins nýtt einu sinni til jöfnunar.
  6. Enginn kolefnisleki: Verkefnið má ekki verða til þess að losun flytjist annað.
  7. Óháð vottun: Óháður þriðji aðili verður að staðfesta árangurinn.
  8. Skaðar ekki önnur umhverfismarkmið: Verkefnið má ekki skaða önnur umhverfismarkmið.

Vottaðar kolefniseiningar

Til að tryggja ábyrg viðskipti ætti alltaf að kaupa einingar sem eru vottaðar samkvæmt alþjóðlegum stöðlum. Gott er að velja einingar frá seljendum sem eru með vottanir þar sem tekið er til allra átta þáttanna sem eru taldir upp að ofan.

Vottun á gæðum kolefniseiningar er besta tryggingin fyrir því að verkefni sé trúverðugt og skili þeim árangri sem lofað er.

Öll geta nýtt sér leiðbeiningarnar

Umhverfis- og orkustofnun veitir opinberum aðilum ráðgjöf um hvernig eigi að kolefnisjafna á ábyrgan hátt. Leiðbeiningarnar eru þess vegna sniðnar að opinberum að aðilum en geta einnig nýst fyrirtækjum, félagasamtökum og einstaklingum.

Opinberir aðilar eru skyldugir til þess að kolefnisjafna sína starfsemi. Jafnvel þótt starfsemin sé kolefnisjöfnuð, þýðir það ekki að hún sé sjálfkrafa umhverfisvæn eða sjálfbær. Opinberir aðilar ættu að forðast að draga slíkar ályktanir í útgefnu efni.

Það er mikil þróun á þekkingu í alþjóðasamfélaginu um hvaða leiðir er best að fara. Þessar leiðbeiningar verða í reglulegri skoðun næstu árin. 

Kennitala: 700924-1650

Akureyri

Rangárvellir 2, hús 8, IS-603

Egilsstaðir

Tjarnarbraut 39B, IS-700

Reykjavík

Suðurlandsbraut 24, IS-108

Selfoss

Austurvegur 20, IS-800