
Loftslagsdagurinn 2026
Loftslagsbreytingar og öryggi
28. október kl. 9 - 14 í Norðurljósasal Hörpu
Dagskrá 2026
Þema Loftslagsdagsins að þessu sinni eru loftslagsbreytingar og öryggi.
09:00 Upptaktur
- Opnun ‒ Gestur Pétursson, forstjóri Umhverfis- og orkustofnunar
- Ávarp ‒ Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra
- Loftslagsáhætta í samhengi þjóðaröryggis ‒ Helgi Valberg Jensson, ritari þjóðaröryggisráðs
09:30 Hvernig miðar okkur?
- Losun í daglegu lífi ‒ Birgir Urbancic Ásgeirsson, sérfræðingur í teymi losunarbókhalds hjá Umhverfis- og orkustofnun
- Aðgerðaáætlun í loftslagsmálum ‒ Elín Björk Jónasdóttir, sérfræðingur á skrifstofu loftslagsmála í umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti
10:05 Morgunkaffi
10:25 Orkuöryggi og loftslagsbreytingar
- Trygg orka, alltaf ‒ Ragna Árnadóttir, forstjóri Landsnets
- Aðgerðir stjórnvalda til að tryggja orkuöryggi: Mat, viðmið og ný verkfæri ‒ Hanna Björg Konráðsdóttir, skrifstofustjóri Raforkueftirlits hjá Umhverfis- og orkustofnun
- Orkuöryggi í óvissum heimi ‒ Jóhanna Hlín Auðunsdóttir, forstöðumaður loftslags og sjálfbærni hjá Landsvirkjun
- Leitum ekki langt yfir skammt ‒ orkuskipti í þágu orkuöryggis ‒ Hörn Halldóru og Heiðarsdóttir, sérfræðingur í teymi orkuskipta og orkunýtni hjá Umhverfis- og orkustofnun
11:10 Hlé
11:20 Fæðuöryggi og loftslagsbreytingar
- Hver fæðir Ísland þegar á reynir? ‒ Margrét Ágústa Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri Bændasamtaka Íslands
- Viðnámsþróttur fæðukerfa á Íslandi ‒ Ólafur Ögmundarson, prófessor og deildarforseti Matvæla- og næringarfræðideildar Háskóla Íslands
- Hugvekja ‒ Sigríður Hagalín Björnsdóttir, rithöfundur
- Auðlindir hafsins: Fæðuöryggi á tímum loftslagsbreytinga ‒ Guðmundur Óskarsson, sviðsstjóri uppsjávarsviðs hjá Hafrannsóknarstofnun
- Tækifærin í lífrænu Íslandi ‒ Anna María Björnsdóttir, verkefnastjóri Lífræns Íslands
12:15 Hádegismatur
12:55 Samfélagsöryggi og loftslagsbreytingar
- Mannvirki til framtíðar, aðlögun að breyttu loftslagi ‒ Elín Þórólfsdóttir, teymisstjóri starfsumhverfis mannvirkjagerðar hjá Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun
- Sjávarflóð og samfélagsöryggi ‒ Halldór Björnsson, fagstjóri veðurs og loftslags hjá Veðurstofu Íslands
- Tré og samfélag: Verkefni Rauða krossins í Síerra Leóne ‒ Sólrún María Ólafsdóttir, teymisstjóri alþjóðaverkefna hjá Rauða krossinum
- Áskoranir við skipulagsgerð á lágsvæðum ‒ Gunnar Páll Eydal, Verkís
- Samhljómur eða sundurlausn í loftslagsmálum? ‒ Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins
13:45 Lokaorð og ráðstefnuslit
- Lokaorð ‒ Andri Snær Magnason, rithöfundur
14:00 Loftslagsdeginum lýkur
Fundarstjórar eru Heiðbjört Arney Höskuldsdóttir og Jóhannes Bjarki Urbancic Tómasson, sérfræðingar hjá Umhverfis- og orkustofnun.

Skráning

Um Loftslagsdaginn
Loftslagsdagurinn er haldinn í fjórða sinn árið 2026. Hann fer fram 28. október frá kl. 9 - 14 í Norðurljósasal Hörpu.
Loftslagsdagurinn hefur fest sig í sessi sem einn helsti viðburðurinn á sviði loftslagsmála á Íslandi. Þar koma fram sérfræðingar úr ýmsum áttum og fjalla um loftslagsmál á mannamáli.
Hornsteinn dagsins er erindi þar sem við fjöllum um stöðu losunar gróðurhúsalofttegunda á Íslandi. Þar veitum við innsýn í losunarbókhaldið sem við höldum utan um hjá Umhverfis- og orkustofnun.
Fyrir hver er Loftslagsdagurinn?
- Almenning
- Atvinnulífið
- Fjölmiðla
- Nemendur
- Stjórnvöld
- Vísindasamfélagið
- Öll sem hafa áhuga á loftslagsmálum

Svansvottaður viðburður
Loftslagsdagurinn 2026 hefur hlotið Svansvottun. Vottunin staðfestir að viðburðurinn uppfyllir metnaðarfullar kröfur um umhverfismál og sjálfbærni. Svansvottun tekur til fjölmargra þátta í skipulagningu og framkvæmd viðburðarins, meðal annars orkunotkunar, samgangna, úrgangsmála, veitinga, auðlindanýtingar og samskipta við birgja.
Markmið vottunarinnar er að draga úr umhverfisáhrifum viðburðarins með skipulögðum og mælanlegum aðgerðum og jafnframt hvetja gesti, samstarfsaðila og aðra þátttakendur til sjálfbærrar hegðunar.
Með Svansvottun Loftslagsdagsins viljum við sýna í verki að hægt er að halda faglegan og áhrifamikinn viðburð með ábyrgð gagnvart umhverfinu og leggja þannig okkar af mörkum til sjálfbærari framtíðar.


Aðgengi
Við hvetjum öll sem sækja Loftslagsdaginn til að velja vistvænar samgöngur. Þannig leggjum við okkar af mörkum til að draga úr kolefnisspori viðburðarins og styðja við markmið Loftslagsdagsins.
Aðgengi með Strætó: Fyrir utan Hörpu er strætóstoppistöð í innan við 100 metra fjarlægð frá aðalinngangi þar sem leið 1 stoppar.
Það er um 3 til 5 mínútna ganga (um 450 metrar) að Lækjartorgi, einni helstu samgöngumiðstöð Strætó. Þar stoppa fjölmargar leiðir sem gera gestum auðvelt að ferðast til og frá viðburðinum víðs vegar af höfuðborgarsvæðinu og tengjast við strætó leiðir út á land.
Aðrir sjálfbærir ferðamátar: Harpa er vel staðsett fyrir þá sem kjósa að koma gangandi, á hjóli, með Hopp (sem býður upp á rafskútur og deilibíla) eða með öðrum vistvænum samgöngulausnum.
Aðgengi fyrir öll: Harpa er hönnuð með aðgengi að leiðarljósi og leitast við að tryggja að öll geti notið viðburða í húsinu. Aðalinngangar eru aðgengilegir fyrir hjólastóla og aðra sem nota hjálpartæki til hreyfingar. Lyftur eru á milli hæða og aðgengileg salerni eru víðs vegar um húsið. Starfsfólk Hörpu er jafnframt reiðubúið að veita frekari aðstoð eftir þörfum.

Blöndum geði
Dagskrá Loftslagsdagsins byggist á fjölbreyttum erindum, umræðum, hugvekjum og tækifærum til að blanda geði! Dagurinn hefur fest sig í sessi sem einn helsti viðburðurinn á sviði loftslagsmála á Íslandi.


Fyrri viðburðir
Á dagskrá fyrri viðburða hafa verið fjölbreytt viðfangsefni sem öll snerta loftslagsmál á einn eða annan hátt. Fastur liður í dagskrá Loftslagsdagsins er að fara yfir nýjustu upplýsingar um losun Íslands og hvert við stefnum.
Við höfum meðal annars fjallað um:
- Hvaða breytingar þurfum við að gera á samfélaginu til að ná markmiðum í loftslagsmálum?
- Lausnir og aðlögun: Hvert erum við komin og hvernig er hægt að bregðast við afleiðingunum?
- Hvernig skila peningarnir árangri í loftslagsmálum?
- Orkuskipti
- Loftslagslausnir í sýndarveruleika
Upptaka: Loftslagsdagurinn 2025

Fyrir fjölmiðla
Við hvetjum fjölmiðla til að hafa samband sé óskað eftir viðtali eða öðrum upplýsingum um viðburðinn.
Verkefnastjóri Loftslagsdagsins
Katrín Björg Jónasdóttir, leiðtogi samskipta og miðlunar hjá Umhverfis- og orkustofnun.
Sími: 822 4038 - Netfang: katrinj@uos.is
Svipmyndir frá Loftslagsdeginum












Ljósmyndari: Gunnar Sverrisson
Merki Loftslagsdagsins



Var efnið hjálplegt?
Hjálpaðu okkur að bæta gæði efnisins





