Loftslagsdagurinn 2026 fyrstur íslenskra viðburða til að hljóta Svansvottun

Loftslagsdagurinn 2026 er fyrsti viðburðurinn á Íslandi sem hlýtur Svansvottun. Markmið Svansvottuninnar er að draga úr umhverfisáhrifum viðburðarins. Gestir Loftslagsdagsins geta meðal annars gætt sér á lífrænum veitingum og nýtt Hopp sér að kostnaðarlausu til að komast til og frá viðburðinum.
Loftslagsdagurinn fer fram þann 28. október í Svansvottuðu ráðstefnurými Hörpu.

Hvað felst í Svansvottun Loftslagsdagsins?
Svansvottun Loftslagsdagsins 2026 staðfestir að viðburðurinn uppfyllir metnaðarfullar kröfur um umhverfisáhrif og sjálfbærni.
Þegar viðburðir eru Svansvottaðir er rýnt í alla þætti í skipulagningu og framkvæmd þeirra sem geta haft neikvæð áhrif á umhverfið. Skipuleggjendur viðburða þurfa að uppfylla fjölbreyttar kröfur til þess að minnka orkunotkun, losun gróðurhúsalofttegunda, sóun, úrgang og notkun skaðlegra efna.
Dæmi um aðgerðir á Loftslagsdaginn 2026:
- Aukið framboð af lífrænum hráefnum og grænmetis- eða grænkeraveitingum eru á boðstólnum, fjölda rétta haldið í lágmarki til þess að minnka matarsóun og enginn einnota borðbúnaður.
- Lokaðir kælar á veitingasvæði til að minnka orkunotkun.
- Orkusparandi hljóð- og myndkerfi.
- Endurhlaðaðanlegar rafhlöður í rafmagnstækjum.
- Takmörkun á útprentuðum ráðstefnugögnum og strangar kröfur um gjafapoka eða annan varning.
- Endurnýtanlegar skreytingar.
- Umhverfisvottaður salernispappír og ræstivörur.
- Sýnileg og vel merkt flokkunaraðstaða fyrir þátttakendur og starfsfólk.

Gestir Hoppa á viðburðinn
Allir gestir á Loftslagsdaginn 2026 hafa kost á því að nota rafskutlur eða rafmagnsbíla frá Hopp til þess að komast til og frá Hörpu án endurgjalds. Stór liður í Svansvottunarferli viðburða er að innleiða aðgerðir sem minnka losun gróðurhúsalofttegunda. Einn af möguleikunum til að ná því markmiði er að bjóða þátttakendum frímiða í almenningssamgöngur.

Mörg tækifæri til umbóta á ráðstefnum og fundum
Mikill fjöldi ráðstefna og stórra funda er haldinn á Íslandi á ári hverju. Umhverfisáhrif viðburðanna geta verið talsverð og það eru fjölmörg tækifæri til umbóta.
Væri til dæmis hægt að
- sleppa óþarfa gjafapokum?
- draga úr prentun dagskráa og bæklinga?
- minnka magn matar og drykkja til að draga úr matarsóun?
- hvetja þátttakendur til að velja umhverfisvænni ferðamáta?
Með því að skoða og fjalla um umhverfisáhrif viðburða eykst vitund starfsfólks og gesta, fyrirtæki geta bætt ímynd sína og það skapar eftirspurn í samfélaginu eftir þjónustu og lausnum sem taka mið af umhverfinu.
„Það er mikilvægt fyrir okkur hjá Umhverfis- og orkustofnun að sýna gott fordæmi og halda umhverfisvænni viðburði. Svansvottunarferlið reyndist frábært verkfæri á þessari vegferð. Nú skorum við bara á aðrar stofnanir og fyrirtæki að gera það sama“ segir Sigurður Ingi Friðleifsson, sviðsstjóri loftslags og orkuskipta.
Umhverfisvænna viðburðahald í Hörpu
Loftslagsdagurinn 2026 fer fram í Hörpu. Ráðstefnurými hússins hlaut Svansvottun árið 2022 og lagði þar með grunn að umhverfisvænna viðburðarhaldi á Íslandi.

Um Loftslagsdaginn 2026
Loftslagsdagurinn 2026 fer fram 28. október kl. 9–14 í Norðurljósasal Hörpu og í beinu streymi. Dagskrá og skráning eru á loftslagsdagurinn.is.
Þema dagsins í ár er öryggi og loftslagsmál og verður meðal annars fjallað um tengsl loftslagsbreytinga við samfélagsöryggi, fæðuöryggi og orkuöryggi.
Loftslagsdagurinn er haldinn í fjórða sinn árið 2026 og er vettvangur fyrir almenning, atvinnulíf, stjórnvöld, vísindasamfélagið og aðra sem vilja fræðast um stöðu og áskoranir í loftslagsmálum.
Hvað er Svanmerkið?
Svansmerkið er opinbert umhverfismerki Norðurlandanna sem tekur til alls lífsferils vöru og þjónustu. Svansvottuð vara er betri fyrir umhverfið og heilsuna.
Svansvottun er auðveld leið til að miðla umhverfisstarfi fyrirtækis og sendir neytendum skýr skilaboð um að fyrirtækið vinni markvisst að því að draga úr umhverfisáhrifum í öllum lífsferli vörunnar.
Svansmerkið er áreiðanleg vottun sem 93% Íslendinga þekkja.









