Losunarheimildir fyrir skipaflutninga
Síðast uppfært: 21. október 2025
Úthlutun
Engum endurgjaldslausum losunarheimildum er úthlutað til skipafélaga.
Uppgjör
Þann 1. október 2025 voru öll skipafélög sem falla undir ábyrgð íslenskra stjórnvalda búin að gera upp nægan fjölda losunarheimilda vegna losunar sinnar árið 2024. Skipafélög féllu í fyrsta skiptið undir ETS-kerfið þann 1. janúar 2024 og þurfa aðeins að gera upp hluta af losun sinni árin 2024 (40%) og 2025 (70%). Skipafélög munu þurfa að gera upp losunarheimildir vegna allrar losunar sinnar sem fellur undir ETS-kerfið árið 2026, en það uppgjör mun fara fram fyrir 30. september árið 2026. Einnig fá skipafélög að skila af sér færri losunarheimildum vegna skipa með ísflokk til og með 2030.
Árið 2024 voru sex skipafélög sem féllu undir ábyrgð íslenskra stjórnvalda í ETS-kerfinu, þar af eitt íslenskt. Skipafélög geta bæst við ef þau sigldu ekki ferðir innan EES svæðisins á árunum 2019-2023 og fyrsta ferð þeirra innan EES hefst eða lýkur í íslenskri höfn. Nú þegar hafa bæst við tvö skipafélög sem munu þurfa að gera upp losun sína fyrir árið 2025 fyrir 30. september 2026.
Eina íslenska skipafélagið sem fellur undir íslensk stjórnvöld í ETS-kerfinu er Eimskip, en það er jafnframt það skipafélag sem mest losun er frá af þeim skipafélögum sem falla undir kerfið á Íslandi.
Önnur skipafélög sem féllu undir íslensk stjórnvöld árið 2024 eru Lindblad Expeditions LLC (Bandaríkin), Anglo-Eastern Cruise Management Inc. (Bandaríkin), Hinase Ship Management Co., Ltd. (Japan), Compass Shipping 37 Corporation Limited (Marshall eyjar) og LFonds Management Pvt. Ltd. (Indland).
Heildarlosun frá skipafélögum sem þurftu að gera upp í ETS á Íslandi var 98.746 tonn CO2-ígilda en þar af þurftu félögin að skila af sér losunarheimildum fyrir alls 37.989 tonn CO2-ígilda.
Á gagnvirka grafinu hér að neðan er hægt að skoða staðfesta losun frá 2024 frá öllum skipafélögum sem gera upp í ETS á Íslandi. Með því að velja strikin þrjú í hægra horninu er hægt að hala niður gögnunum.
Var efnið hjálplegt?
Hjálpaðu okkur að bæta gæði efnisins







