Umhverfis- og orkustofnun áformar að framlengja starfsleyfi Coripharma ehf. sem gildir fyrir lyfjaverksmiðju þeirra að Reykjavíkurvegi 76 - 80, Hafnarfirði. Umhverfis- og orkustofnun er heimilt að framlengja starfsleyfi rekstraraðila í samræmi við 4. mgr. 6. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir. Framlenging á starfsleyfi er heimil til eins árs eða til 30. mars 2027.
Athugasemdir við áform um framlengingu leyfisins skulu vera skriflegar og sendar Umhverfis- og orkustofnun á netfangið uos@uos.is merktar UOS-2699. Frestur til að skila inn athugasemdum er til og með 16. mars 2026.





