Merki Umhverfis- og orkustofnunar

Áform um framlengingu á starfsleyfi Hitaveitu Hveragerðis

Umhverfis- og orkustofnun áformar að framlengja starfsleyfi Veitna ohf. sem gildir fyrir hitaveitu Hveragerðis. Umhverfis- og orkustofnun er heimilt að framlengja starfsleyfi rekstraraðila í samræmi við 4. mgr. 6. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir. Framlenging á starfsleyfi er heimil til eins árs eða til 2. júlí 2027.

Athugasemdir við áform um framlengingu leyfisins skulu vera skriflegar og sendar Umhverfis- og orkustofnun á netfangið uos@uos.is merkt UOS-5761. Frestur til að skila inn athugasemdum er til og með 28. júní 2026.

Kennitala: 700924-1650

Akureyri

Rangárvellir 2, hús 8, IS-603

Egilsstaðir

Tjarnarbraut 39B, IS-700

Reykjavík

Suðurlandsbraut 24, IS-108

Selfoss

Austurvegur 20, IS-800