Umhverfis- og orkustofnun áformar að framlengja starfsleyfi Skinney-Þinganes hf. sem gildir fyrir fiskimjölsverksmiðju þeirra að Óslandi, Hornafirði. Umhverfis- og orkustofnun er heimilt að framlengja starfsleyfi rekstraraðila í samræmi við 4. mgr. 6. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir. Framlenging á starfsleyfi er heimil til eins árs eða til 30. júní 2027.
Athugasemdir við áform um framlengingu leyfisins skulu vera skriflegar og sendar Umhverfis- og orkustofnun á netfangið uos@uos.is merkt UOS-3802. Frestur til að skila inn athugasemdum er til og með 19. júní 2027.
Hér er hægt að skoða starfsleyfið sem áformað er að framlengja: Starfsleyfi Skinney-Þinganes hf.





