Umhverfis- og orkustofnun áformar að framlengja starfsleyfi Elkem ehf. á Grundartanga sem gildir fyrir framleiðslu á kísil og kísiljárni. Umhverfis- og orkustofnun er heimilt að framlengja starfsleyfi rekstraraðila í samræmi við 4. mgr. 6. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir. Framlenging á starfsleyfi er heimil til eins árs eða til 1. september 2026.
Athugasemdir við áform um framlengingu leyfisins skulu vera skriflegar og sendar Umhverfis- og orkustofnun á netfangið uos@uos.is merkt UOS2506254. Frestur til að skila inn athugasemdum er til og með 25. ágúst 2025.
Hér er hægt að skoða starfsleyfið sem áformað er að framlengja: Starfsleyfi Elkem





