Umhverfis- og orkustofnun auglýsir áform um veitingu bráðabirgðaheimildar fyrir Orkuveitu Reykjavíkur til áframhaldandi starfsemi jarðborsins Auði í eigu fyrirtækisins.
Orkuveita Reykjavíkur óskar eftir bráðabirgðaheimild til að halda áfram rekstri jarðborsins á meðan Umhverfis- og orkustofnun vinnur að útgáfu á starfsleyfi fyrir starfseminni. Umhverfis- og orkustofnun er heimilt skv. 7. gr. a. laga nr. 7/1998 að veita rekstraraðila bráðabirgðaheimild að uppfylltum skilyrðum.
Frestur til að skila inn athugasemdum við auglýsinguna er til og með 2. júní 2026. Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast stofnuninni á netfangið uos@uos.is merktar UOS-5960.





