Merki Umhverfis- og orkustofnunar

Áform um veitingu bráðabirgðaheimildar fyrir North Tech Drilling ehf.

Umhverfis- og orkustofnun auglýsir áform um veitingu bráðabirgðaheimildar fyrir North Tech Drilling ehf. til áframhaldandi starfsemi jarðborsins Rig 16, Drillmec HH-102 í eigu fyrirtækisins.

North Tech Drilling ehf. óskar eftir bráðabirgðaheimild til að halda áfram rekstri jarðborsins á meðan Umhverfis- og orkustofnun vinnur að útgáfu á starfsleyfi fyrir starfseminni. Umhverfis- og orkustofnun er heimilt skv. 7. gr. a. laga nr. 7/1998 að veita rekstraraðila bráðabirgðaheimild að uppfylltum skilyrðum. 

Frestur til að skila inn athugasemdum við auglýsinguna er til kl. 12:00 þann 13. maí 2026. Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast stofnuninni á netfangið uos@uos.is merktar UOS-5655.

Kennitala: 700924-1650

Akureyri

Rangárvellir 2, hús 8, IS-603

Egilsstaðir

Tjarnarbraut 39B, IS-700

Reykjavík

Suðurlandsbraut 24, IS-108

Selfoss

Austurvegur 20, IS-800