Umhverfis- og orkustofnun auglýsir áform um veitingu bráðabirgðaheimildar fyrir Reykjavíkurborg, Skóla- og frístundasvið, kt. 530269-7609, til að hefja kennslu í færanlegum kennslustofum á lóð Ölduselsskóla, Ölduseli 17, 109 Reykjavík.
Umhverfis- og orkustofnun er heimilt skv. 7. gr. a. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir að veita rekstraraðila bráðabirgðaheimild að uppfylltum skilyrðum.
Athugasemdafrestur við auglýsinguna er til og með 26. apríl 2026. Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast stofnuninni á netfangið uos@uos.is merktar UOS-5438.





