Umhverfis- og orkustofnun auglýsir áform um veitingu bráðabirgðaheimildar fyrir Reykjavíkurborg, Skóla- og frístundasvið, kt. 530269-7609, til að hefja kennslu í færanlegum kennslustofum á lóð Hólabrekkuskóla við Suðurhóla 10, 111 Reykjavík.
Umhverfis- og orkustofnun er heimilt skv. 7. gr. a. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir að veita rekstraraðila bráðabirgðaheimild að uppfylltum skilyrðum.
Athugasemdafrestur við auglýsinguna er til kl. 12:00 á hádegi, föstudaginn 2. janúar 2026. Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast stofnuninni á netfangið uos@uos.is merktar UOS2512073.





