Umhverfis- og orkustofnun auglýsir áform um veitingu bráðabirgðaheimildar fyrir Skeiða- og Gnúpverjahrepp, kennitala 540602-4410, til að hefja rekstur á brennsluofni fyrir dýrahræ í Árnesi.
Skeiða- og Gnúpverjahreppur sótti um bráðabirgðaheimild þann 22. október 2026. Óskað er eftir bráðabirgðaheimild til reksturs brennsluofns fyrir dýrahræ, þar til starfsleyfi hefur verið gefið út. Fram kemur í umsókninni að brýn þörf sé á öruggri förgun dýrahræja, en um 120 tonn falli til árlega í sveitarfélaginu. Eftir að urðun dýrahræja var bönnuð hafi þurft að flytja hræin til Kölku á Reykjanesi, sem hefur margfaldað kostnað við flutning og förgun. Ef sá kostnaður yrði lagður á bændur telur sveitarfélagið ljóst að urðun heima á bæjum myndi stóraukast. Sveitarfélagið bendir á að staðbundin brennsla myndi draga úr löngum flutningum með tilheyrandi umhverfisáhrifum og áhættu. Jafnframt að með rekstri brennsluofnsins sé hægt að tryggja örugga förgun dýrahræja á viðurkenndan hátt, koma í veg fyrir óþarfa geymslu dýrahræja og tryggja samfellu í nauðsynlegri þjónustu við landbúnað. Brennsluofninn hafi þegar verið settur upp og sé tilbúinn til notkunar og telji sveitarfélagið brýnt að aðstaðan standi ekki ónotuð.
Umhverfis- og orkustofnun er heimilt samkvæmt 7. gr. a. laga nr. 7/1998 að veita rekstraraðila bráðabirgðaheimild að uppfylltum skilyrðum. Umhverfis- og orkustofnun áformar að veita bráðabirgðaheimild vegna brýnnar þarfar á að koma dýrahræjum í viðeigandi farveg og þar með tryggja rétta úrgangsmeðhöndlun.
Frestur til að skila inn athugasemdum við auglýsinguna er til og með 6. nóvember 2026. Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast stofnuninni á netfangið uos@uos.is merktar UOS-7895.





