Merki Umhverfis- og orkustofnunar

Ákvörðun um framlengingu bráðabirgðaheimildar Stolt Sea Farm Iceland hf.

Umhverfis- og orkustofnun hefur tekið ákvörðun um að framlengja bráðabirgðaheimild Stolt Sea Farm Iceland hf.  til reksturs landeldisstöðvar á Reykjanesi. Félagið óskaði eftir framlengdri bráðabirgðaheimild til að halda áfram starfsemi sinni á meðan unnið er að endurnýjun starfsleyfis.

Samkvæmt 6. mgr. 7. gr. a. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998 er Umhverfis- og orkustofnun heimilt að framlengja bráðabirgðaheimild um allt að eitt ár að uppfylltum skilyrðum greinarinnar. 

Bráðabirgðaheimild Stolt Sea Farm Ísland hf. var markaður gildistími til 27. júní 2026. Umhverfis- og orkustofnun hefur tekið ákvörðun um að framlengja bráðabirgðaheimildina til 27. júní 2027.

Áformin voru auglýst frá18. júní til hádegis miðvikudaginn 24. Júní en engar athugasemdir bárust á auglýsingatímanum.

Ákvörðun Umhverfis- og orkustofnunar er kæranleg til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála innan eins mánaðar frá birtingu ákvörðunar stofnunarinnar skv. 1. mgr. 65. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir, sbr. 4. gr. laga nr. 130/2011, um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála.

Kennitala: 700924-1650

Akureyri

Rangárvellir 2, hús 8, IS-603

Egilsstaðir

Tjarnarbraut 39B, IS-700

Reykjavík

Suðurlandsbraut 24, IS-108

Selfoss

Austurvegur 20, IS-800