Umhverfis- og orkustofnun hefur tekið ákvörðun um veitingu bráðabirgðaheimildar fyrir Jarðboranir hf. til áframhaldandi starfsemi jarðborsins Óðinn í eigu fyrirtækisins.
Áform um veitingu bráðabirgðaheimildarinnar voru auglýst frá 13. maí til og með 17. maí sl. Engar athugasemdir bárust á auglýsingatímanum.
Ákvörðun Umhverfis- og orkustofnunar er kæranleg til úrskurðanefndar umhverfis- og auðlindamála innan eins mánaðar frá birtingu ákvörðunar Umhverfis- og orkustofnunar.





