Umhverfis- og orkustofnun hefur tekið ákvörðun um veitingu bráðabirgðaheimildar fyrir North Tech Drilling ehf. til áframhaldandi starfsemi jarðborsins Rig 16, Drillmec HH-102 í eigu fyrirtækisins.
Áform um veitingu bráðabirgðaheimildarinnar voru auglýst frá 11. maí til kl 12:00 þann 13 maí sl. Engar athugasemdir bárust á auglýsingatímanum.
Ákvörðun Umhverfis- og orkustofnunar er kæranleg til úrskurðanefndar umhverfis- og auðlindamála innan eins mánaðar frá birtingu ákvörðunar Umhverfis- og orkustofnunar.





