Merki Umhverfis- og orkustofnunar

Ákvörðun um veitingu bráðabirgðaheimildar fyrir Reykjavíkurborg vegna Laugarnesskóla

Umhverfis- og orkustofnun hefur tekið ákvörðun um veitingu bráðabirgðarheimildar fyrir Reykjavíkurborg, Skóla- og frístundasvið, kt. 530269-7609, til að hefja kennslu í færanlegum kennslustofum á lóð Skólaþorpsins í Laugardal, Reykjavegi 19, 104 Reykjavík.

Áform um veitingu bráðabirgðaheimildarinnar voru auglýst á tímabilinu frá 8. apríl til og með 12. apríl 2026. Engar athugasemdir bárust á auglýsingatímanum.

Ákvörðun Umhverfis- og orkustofnunar er kæranleg til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála innan eins mánaðar frá birtingu ákvörðunar stofnunarinnar skv. 1. mgr. 65. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir, sbr. 4. gr. laga nr. 130/2011 um úrskurðanefnd umhverfis- og auðlindamála.

Kennitala: 700924-1650

Akureyri

Rangárvellir 2, hús 8, IS-603

Egilsstaðir

Tjarnarbraut 39B, IS-700

Reykjavík

Suðurlandsbraut 24, IS-108

Selfoss

Austurvegur 20, IS-800