Til baka

14 febrúar 2025

Breyting á starfsleyfi urðunarstaðar við Bakkafjörð

Umhverfis- og orkustofnun hefur tekið ákvörðun um breytingu á starfsleyfi urðunarstaðar Langanesbyggðar, kt. 420369-1749, við Bakkafjörð.

Urðunarstaðurinn við Bakkafjörð er með gilt starfsleyfi frá 21. mars 2018 til að taka á móti og urða allt að 200 tonn af úrgangi á ári sem gildir til 21. mars 2034.

Ákvörðunin felur það í sér að felld eru á brott ákvæði í 7. - 11. tl. í 1. mgr. gr. 4.1 í starfsleyfinu þar sem gerður er áskilnaður um skráningu á daglegum veðurathugunum.

Umhverfisstofnun auglýsti breytingartillögu á tímabilinu 23. desember 2024 til 21. janúar 2025 á vef Umhverfisstofnunar og einnig frá 8. janúar á nýjum vef Umhverfis- og orkustofnunar þar sem hægt var að koma með athugasemdir vegna tilögunnar. Engar athugasemdir bárust vegna tillögunnar á auglýsingatíma.

Ákvörðun Umhverfis- og orkustofnunar er kæranleg til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála innan eins mánaðar frá birtingu ákvörðunar stofnunarinnar skv. 1. mgr. 65. gr. laga nr. 7/1998, um hollustu hætti og mengunarvarnir, sbr. 4. gr. laga nr. 130/2011, um úrskurðanefnd umhverfis- og auðlindamála.

Meðfylgjandi skjöl:

Ákvörðun um breytingu á starfsleyfi urðunarstaðar við Bakkafjörð

Starfsleyfi Langanesbyggðar Bakkafirði

Við erum á samfélagsmiðlum

Facebook merki

Umhverfis- og orkustofnun

Suðurlandsbraut 24

108 Reykjavík

--

Rangárvellir 2, hús 8

603 Akureyri

Hafa samband

Netfang: uos@uos.is

Sími: 569 6000

Opið fyrir símtöl milli kl. 8:30 og 15 alla virka daga

Kennitala: 7009241650