Umhverfis- og orkustofnun hefur fallist á að endurnýja leyfi Íslenska kalkþörungafélagsins ehf. til hagnýtingar kalkþörungasets af hafsbotni utan netlaga á tilgreindum svæðum í Ísafjarðardjúpi.
Ákvörðun Umhverfis- og orkustofnunar um endurnýjun leyfisins er kæranleg til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála innan eins mánaðar frá birtingu hennar, skv. 1. mgr. 6. gr. laga nr. 73/1990, um eignarétt íslenska ríkisins að auðlindum hafsbotnsins, sbr. 4. gr. laga nr. 130/2011, um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála.





