Umhverfis- og orkustofnun hefur tekið ákvörðun um framlengingu á gildistíma starfsleyfis Coripharma ehf. fyrir rekstur lyfjaframleiðslu við Reykjavíkurveg, Hafnarfirði.
Samkvæmt. 4. mgr. 6. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir má útgefandi starfsleyfis framlengja gildistíma starfsleyfis meðan nýtt starfsleyfi er í vinnslu, að hámarki til eins árs, hafi fullnægjandi umsókn borist útgefanda. Áform um framlengingu voru auglýst á heimasíðu Umhverfis- og orkustofnunar frá 9. mars til og með 16. mars sl. Engar athugasemdir bárust á auglýsingatímanum.
Framlenging á starfsleyfi Coripharma ehf. er hér með veitt og mun gilda þar til nýtt starfsleyfi er gefið út eða í síðasta lagi til 30. mars 2027.
Ákvörðun Umhverfis- og orkustofnunar um framlengingu starfsleyfis er kæranleg til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála innan eins mánaðar frá birtingu hennar.





