Merki Umhverfis- og orkustofnunar

Framlenging á starfsleyfi Skinney-Þinganes hf.

Umhverfis- og orkustofnun hefur tekið ákvörðun um framlengingu á gildistíma starfsleyfis Skinney-Þinganes hf. fyrir rekstur fiskimjölsverksmiðju á Höfn í Hornafirði. 

Samkvæmt. 4. mgr. 6. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir má útgefandi starfsleyfis framlengja gildistíma starfsleyfis meðan nýtt starfsleyfi er í vinnslu, að hámarki til eins árs, hafi fullnægjandi umsókn borist útgefanda. Áform um framlengingu voru auglýst á heimasíðu Umhverfis- og orkustofnunar frá 12. júní til og með 19. júní sl. Engar athugasemdir bárust á auglýsingatímanum. 

Framlenging á starfsleyfi Skinney-Þinganes hf. er hér með veitt og mun gilda þar til nýtt starfsleyfi er gefið út eða í síðasta lagi til 30. júní 2027. 

Ákvörðun Umhverfis- og orkustofnunar um framlengingu starfsleyfis er kæranleg til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála innan eins mánaðar frá birtingu hennar. 

Kennitala: 700924-1650

Akureyri

Rangárvellir 2, hús 8, IS-603

Egilsstaðir

Tjarnarbraut 39B, IS-700

Reykjavík

Suðurlandsbraut 24, IS-108

Selfoss

Austurvegur 20, IS-800