Umhverfis- og orkustofnun hefur tekið ákvörðun um yfirfærslu leyfis til afmarkaðrar notkunar erfðabreyttra örvera yfir á Genis Nutraceuticals ehf. Um er að ræða leyfi sem var gefið út á Genís hf.
Engar efnislegar breytingar voru gerðar á leyfinu aðrar en að leyfið hefur nú verið fært yfir á nýjan rekstraraðila, Genis Nutraceuticals ehf.
Ákvörðun Umhverfis- og orkustofnunar um færslu leyfisins er kæranleg til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála innan eins mánaðar frá birtingu ákvörðunarinnar, skv. 29. gr. laga nr. 18/1996 um erfðabreyttar lífverur, sbr. 4. gr. laga nr. 130/2011 um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála.





