Merki Umhverfis- og orkustofnunar

Könnunarleyfi vegna geymslu koldíoxíðs í Helguvík fyrir Carbfix hf.

Umhverfis- og orkustofnun hefur veitt Carbfix hf. könnunarleyfi vegna geymslu koldíoxíðs í jörðu í Helguvík, í samræmi við 33. gr. c laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir og 4. gr. reglugerðar nr. 1430/2022 um geymslu koldíoxíðs í jörðu.

Einnig er með þessu könnunarleyfi veitt heimild til niðurdælingar koldíoxíðs í jörðu til geymslu í samræmi við 7. gr. a. reglugerðar nr. 797/1999 um varnir gegn mengun grunnvatns. Leyfið gildir til 31. desember 2035.

Ákvörðun Umhverfis- og orkustofnunar um útgáfu könnunarleyfis er kæranleg til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála innan eins mánaðar frá því kæranda varð kunnugt eða mátti vera kunnugt um ákvörðunina skv. 65. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir og sbr. 4. gr. laga nr. 130/2011 um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála.

Kennitala: 700924-1650

Akureyri

Rangárvellir 2, hús 8, IS-603

Egilsstaðir

Tjarnarbraut 39B, IS-700

Reykjavík

Suðurlandsbraut 24, IS-108

Selfoss

Austurvegur 20, IS-800