Umhverfis- og orkustofnun hefur veitt Hornafjarðarhöfn leyfi til varps dýpkunarefnis í hafið vegna dýpkunar á Grynnslunum við Hornafjörð í samræmi við lög nr. 33/2004 um varnir gegn mengun hafs og stranda.
Ákvörðun Umhverfis- og orkustofnunar um veitingu leyfis til varps í hafið er kæranleg til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála innan eins mánaðar frá birtingu ákvörðunar Umhverfis- og orkustofnunar, sbr. 4. mgr. 28. gr. laga nr. 33/2004 um varnir gegn mengun hafs og stranda, sbr. 20. gr. breytingarlaga nr. 30/2026, og 4. gr. laga nr. 130/2011 um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála.





