Umhverfis- og orkustofnun hefur tekið ákvörðun um að fella niður rannsóknarleyfi Orkusölunnar ehf., kt. 560306-1130, til rannsókna á vatnasviði Gilsár á Völlum í Múlaþingi (leyfisnúmer: UOS-2026-L003-01) að beiðni félagsins. Rannsóknir á grundvelli rannsóknarleyfisins voru ekki hafnar þegar Orkusalan ehf. tilkynnti um að félagið félli frá leyfinu.
Ákvörðun Umhverfis- og orkustofnunar um niðurfellingu rannsóknarleyfis er kæranleg til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála innan eins mánaðar frá útgáfudegi, sbr. nánar 33. gr. laga nr. 57/1998 og 4. gr. laga nr. 130/2011.





