Unnið er að uppfærslu nokkurra sérvefa okkar og eru þeir tímabundið óaðgengilegir. Við biðjumst velvirðingar á því. Stefnt er að því að þeir verði komnir upp um miðjan mánuðinn.

Merki Umhverfis- og orkustofnunar

Útgáfa á almennu rannsóknarleyfi fyrir University of Minnesota til grunnrannsókna á örverum

Umhverfis- og orkustofnun hefur veitt háskólanum í Minnesota, almennt rannsóknarleyfi til grunnrannsókna á örverum á jarðhitasvæðum A3, A6, A10, B2 og C13.  

Rannsóknarleyfið er gefið út í samræmi við 34. gr. laga nr. 57/1998 um rannsóknir og nýtingu á auðlindum í jörðu og reglur um veitingu leyfa til rannsókna og nýtingar á örverum sem vinna má á jarðhitasvæðum, nr. 234/1999. 

Ákvörðun Umhverfis- og orkustofnunar um útgáfu rannsóknarleyfis er kæranleg til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála innan eins mánaðar frá birtingu ákvörðunar Umhverfis- og orkustofnunar skv. 2. mgr. 33. gr. auðlindalaga og sbr. 4. gr. laga nr. 130/2011 um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála.

Kennitala: 700924-1650

Akureyri

Rangárvellir 2, hús 8, IS-603

Egilsstaðir

Tjarnarbraut 39B, IS-700

Reykjavík

Suðurlandsbraut 24, IS-108

Selfoss

Austurvegur 20, IS-800