Merki Umhverfis- og orkustofnunar

Tillaga að starfsleyfi fyrir Elkem Ísland ehf.

Umhverfis- og orkustofnun auglýsir tillögu að starfsleyfi fyrir kísilver Elkem Ísland ehf, Grundartanga. Gert er ráð fyrir heimild til að framleiða allt að 190.000 tonn á ári af kísil og kísiljárni og allt að 45.000 tonn af kísilryki. Engin breyting er á starfseminni eða umfangi hennar, en starfsleyfið hefur verið endurskoðað m.t.t. BAT-niðurstaðna vegna iðnaðar með járnlausan málm. 

Athugasemdir við starfsleyfistillöguna skulu vera skriflegar og sendar Umhverfis- og orkustofnun (uos@uos.is) merkt UOS2506254, athugasemdir verða birtar við útgáfu nema annars sé óskað. Greinargerð mun fylgja starfsleyfi við útgáfu sbr. 6.gr. reglugerðar nr. 550/2018. Ef áhugi er fyrir hendi að halda opinn kynningarfund um starfsleyfistillöguna er bent á að hafa samband við Umhverfis- og orkustofnun með slíkt erindi sem fyrst.

Frestur til að skila inn athugasemdum er til og með 17. ágúst 2026.

Kennitala: 700924-1650

Akureyri

Rangárvellir 2, hús 8, IS-603

Egilsstaðir

Tjarnarbraut 39B, IS-700

Reykjavík

Suðurlandsbraut 24, IS-108

Selfoss

Austurvegur 20, IS-800