Merki Umhverfis- og orkustofnunar

Tillaga að starfsleyfi fyrir Hringrás ehf., Hafnarfirði

Umhverfis- og orkustofnun auglýsir tillögu að starfsleyfi fyrir endurvinnslustöð Hringrásar ehf., Hafnarfirði. Gert er ráð fyrir heimild til að taka á móti allt að 80.000 tonnum af úrgangi á ári til meðhöndlunar þ.á m. úr sér gengin ökutæki. Þar af er heimild til meðferðar á 35.000 tonnum/ári af málmum í tætara og meðhöndlun á 45.000 tonnum/ári af málmum, hjólbörðum, rafgeymum, rafhlöðum ökutækja, pappa, plasti, tróði, timbri og brennsluefni (RDF efni). Starfsemi málmtætarans fellur undir BAT-niðurstöður vegna úrgangsmeðhöndlunar.

Athugasemdir við starfsleyfistillöguna skulu vera skriflegar og sendar Umhverfis- og orkustofnun (uos@uos.is) merkt UOS2506098, athugasemdir verða birtar við útgáfu nema annars sé óskað. Greinargerð mun fylgja starfsleyfi við útgáfu sbr. 6.gr. reglugerðar nr. 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnaeftirlit. Ef áhugi er fyrir hendi að halda opinn kynningarfund um starfsleyfistillöguna er bent á að hafa samband við Umhverfis- og orkustofnun með slíkt erindi sem fyrst.

Frestur til að skila inn athugasemdum er til og með 26. júlí nk.

Kennitala: 700924-1650

Akureyri

Rangárvellir 2, hús 8, IS-603

Egilsstaðir

Tjarnarbraut 39B, IS-700

Reykjavík

Suðurlandsbraut 24, IS-108

Selfoss

Austurvegur 20, IS-800