Merki Umhverfis- og orkustofnunar

Tillaga að starfsleyfi fyrir Matorku ehf. Húsatóftum

Umhverfis- og orkustofnun auglýsir tillögu að starfsleyfi fyrir Matorku ehf. að Húsatóftum vestan Grindavíkur. Um er að ræða landeldi á laxfiskum með allt að 200 tonna hámarkslífmassa.

Matorka er með gilt starfsleyfi sem markaður er gildistími til 10. september 2026. Ekki er um að ræða breytingu á starfsemi frá eldra starfsleyfi. Framkvæmdin er ekki háð umhverfismati skv. lögum nr. 111/2021.

Athugasemdir við starfsleyfistillöguna skulu vera skriflegar og sendar Umhverfis- og orkustofnun á netfangið uos@uos.is, merktar  UOS2506227. Athugasemdir verða birtar við útgáfu nema annars sé óskað. Greinargerð mun fylgja starfsleyfi við útgáfu sbr. 6. gr. reglugerðar nr. 550/2018.

Frestur til að skila inn athugasemdum er til og með 10. júní nk

Kennitala: 700924-1650

Akureyri

Rangárvellir 2, hús 8, IS-603

Egilsstaðir

Tjarnarbraut 39B, IS-700

Reykjavík

Suðurlandsbraut 24, IS-108

Selfoss

Austurvegur 20, IS-800