Umhverfis- og orkustofnun auglýsir tillögu að starfsleyfi fyrir Múlavirkjun ehf. Tillagan heimilar rekstraraðila áframhaldandi starfsemi Múlavirkjunar sem er 3228 kW vatnsaflsvirkjun í Straumfjarðará á Snæfellsnesi, Eyja- og Miklaholtshreppi. Engin breyting er fyrirhuguð á umfangi eða eðli starfseminnar.
Athugasemdir við starfsleyfistillöguna skulu vera skriflegar og sendar Umhverfis- og orkustofnun (uos@uos.is) merkt UOS-6262, athugasemdir verða birtar við útgáfu nema annars sé óskað. Greinargerð mun fylgja starfsleyfi við útgáfu sbr. 6. gr. reglugerðar nr. 550/2018. Ef áhugi er fyrir hendi að halda opinn kynningarfund um starfsleyfistillöguna er bent á að hafa samband við Umhverfis- og orkustofnun með slíkt erindi sem fyrst.
Frestur til að skila inn athugasemdum er til og með 7. desember nk.





