Umhverfis- og orkustofnun auglýsir tillögu að starfsleyfi fyrir Nesbúegg ehf. að Vatnsleysuströnd, 190 Vogum. Tillagan heimilar rekstraraðila að reka eggjabú með stæði fyrir allt að 65.000 varp- og unghænur. Engin breyting er á umfangi starfseminnar en nýtt starfsleyfi byggir á BAT-niðurstöðum vegna þéttbærs eldis alifugla.
Athugasemdir við starfsleyfistillöguna skulu vera skriflegar og sendar Umhverfis- og orkustofnun (uos@uos.is) merkt UOS2509082, athugasemdir verða birtar við útgáfu nema annars sé óskað. Greinargerð mun fylgja starfsleyfi við útgáfu sbr. 6. gr. reglugerðar nr. 550/2018. Ef áhugi er fyrir hendi að halda opinn kynningarfund um starfsleyfistillöguna er bent á að hafa samband við Umhverfis- og orkustofnun með slíkt erindi sem fyrst.
Frestur til að skila inn athugasemdum er til og með 20. apríl nk.





