Til baka
2. júní 2025
Tillaga að starfsleyfi fyrir Samherja fiskeldi ehf. á Reykjanesi
Umhverfis- og orkustofnun hefur unnið tillögu að starfsleyfi fyrir Samherja fiskeldi ehf. á Reykjanesi. Um er að ræða landeldi á laxfiskum með allt að 20.000 tonna hámarkslífmassa. Framkvæmdin er háð umhverfismati skv. lögum nr. 111/2021. Álit Skipulagsstofnunar lá fyrir 18. júlí 2023 en álitið var haft til grundvallar við vinnslu tillögunnar.
Athugasemdir við starfsleyfistillöguna skulu vera skriflegar og sendar Umhverfis- og orkustofnun á netfangið uos@uos.is, merktar UST202302-183. Athugasemdir verða birtar við útgáfu. Greinargerð mun fylgja starfsleyfi við útgáfu sbr. 6. gr. reglugerðar nr. 550/2018. Frestur til að skila inn athugasemdum er til og með 1. júlí 2025.
Tengd skjöl