Umhverfis- og orkustofnun auglýsir tillögu að starfsleyfi fyrir Sláturfélag Suðurlands svf. að Fossnesi, Selfossi. Tillagan heimilar starfsemi sláturhúss með framleiðslugetu upp að 66 tonnum af skrokkum á dag en einnig brennslu á allt að 260 tonnum af sláturúrgangi á ári, að hámarki 3 tonn/sólarhring.
Engin breyting er á umfangi starfseminnar en nýtt starfsleyfi byggir á BAT-niðurstöðum fyrir sláturhús.
Athugasemdir við starfsleyfistillöguna skulu vera skriflegar og sendar Umhverfis- og orkustofnun (uos@uos.is) merkt UOS-1157, athugasemdir verða birtar við útgáfu nema annars sé óskað. Greinargerð mun fylgja starfsleyfi við útgáfu sbr. 6. gr. reglugerðar nr. 550/2018. Ef áhugi er fyrir hendi að halda opinn kynningarfund um starfsleyfistillöguna er bent á að hafa samband við Umhverfis- og orkustofnun með slíkt erindi sem fyrst.
Frestur til að skila inn athugasemdum er til og með 13. apríl 2026.





