Merki Umhverfis- og orkustofnunar

Tillaga að starfsleyfi Landsvirkjunar fyrir vindorkuver við Vaðöldu

Umhverfis- og orkustofnun auglýsir tillögu að starfsleyfi Landsvirkjunar fyrir vindorkuver við Vaðöldu á Þjórsár- og Tungnaársvæðinu. Gert er ráð fyrir heimild til reksturs á allt að 28 vindmyllum með samanlagt uppsett afl allt að 120MW, auk safnstöðvar og tengdrar starfsemi.

Athugasemdir við starfsleyfistillöguna skulu vera skriflegar og sendar Umhverfis- og orkustofnun (uos@uos.is) merkt UOS-5622, athugasemdir verða birtar við útgáfu nema annars sé óskað. Greinargerð mun fylgja starfsleyfi við útgáfu sbr. 6.gr. reglugerðar nr. 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnaeftirlit.

Ef áhugi er fyrir hendi að halda opinn kynningarfund um starfsleyfistillöguna er bent á að hafa samband við Umhverfis- og orkustofnun með slíkt erindi sem fyrst.

Frestur til að skila inn athugasemdum er til og með 26. júlí 2026.

Kennitala: 700924-1650

Akureyri

Rangárvellir 2, hús 8, IS-603

Egilsstaðir

Tjarnarbraut 39B, IS-700

Reykjavík

Suðurlandsbraut 24, IS-108

Selfoss

Austurvegur 20, IS-800