Umhverfis- og orkustofnun hefur veitt Íslenskum jarðmálmum ehf. rannsóknarleyfi til leitar að málmum suður af Eyjafjarðardal og í átt að Bárðardal.
Ákvarðanir Umhverfis- og orkustofnunar er lúta að veitingu, endurskoðun eða afturköllun leitar-, rannsóknar- og nýtingarleyfa eru kæranlegar. Nánari upplýsingar um kæruleiðir er að finna í leyfinu.





