Umhverfis- og orkustofnun hefur móttekið umsókn Rio Tinto á Íslandi ehf. um breytingu á starfsleyfi. Rio Tinto er með gilt starfsleyfi sem gildir til 28. október 2037 fyrir álveri sínu í Straumsvík, Hafnarfirði. Breytingin felst í auknum umsvifum í steypuskála þar sem að heildarmagn framleiðslu í steypuskála gæti numið allt að 280.000 tonnum á ári.
Umhverfis- og orkustofnun hefur farið yfir umsóknina og metið hana fullnægjandi. Á næstunni verður unnin tillaga að nýju starfsleyfi og verður hún auglýst opinberlega í fjórar vikur.
Öllum gefst tækifæri til að koma með athugasemdir á auglýsingatíma áður en ákvörðun um útgáfu á starfsleyfinu verður tekin.





