Umhverfis- og orkustofnun hefur móttekið umsókn Kaldvíkur hf. um breytingu á starfsleyfum félagsins í Reyðarfirði.
Kaldvík hf. er með tvö gild starfsleyfi fyrir sjókvíaeldi á laxfiskum í Reyðarfirði. Félagið hefur sótt um að leyfin verði sameinuð í eitt leyfi með rýmri afmörkun eldissvæða og styttum hvíldartíma eldissvæða í 90 daga.
Umhverfis- og orkustofnun hefur farið yfir umsóknina og metið hana fullnægjandi. Á næstunni verður unnin tillaga að starfsleyfi og í framhaldinu er gert ráð fyrir að hún verið auglýst í fjórar vikur.
Öllum gefst tækifæri til að koma með athugsemdir á auglýsingatíma áður en ákvörðun um útgáfu starfsleyfisins verður tekin.





