Umhverfis- og orkustofnun hefur móttekið umsókn Matorku ehf. um starfsleyfi að Húsatóftum, Grindavík. Um er að ræða allt að 200 tonna landeldi á laxfiski. Matorka ehf. er með gilt starfsleyfi að Húsatóftum til 10. september 2026. Ekki er um að ræða breytingu á umfangi frá gildandi leyfi.
Umhverfis- og orkustofnun hefur farið yfir umsóknina og metið hana fullnægjandi. Á næstunni verður unnin tillaga að nýju starfsleyfi og verður hún auglýst opinberlega í fjórar vikur.
Öllum gefst tækifæri til að koma með athugasemdir á auglýsingatíma áður en ákvörðun um útgáfu á starfsleyfinu verður tekin.





