Til baka

27. maí 2025

Umsókn um virkjunarleyfi - Folaldahálsvirkjun

Auglýsing vegna umsóknar Suðurdals ehf. um virkjunarleyfi til að reisa og reka gufuaflsvirkjun á Folaldahálsi í Grímsnes- og Grafningshreppi var birt í Lögbirtingarblaðinu þann 21.maí 2025.

Suðurdalur ehf., kt. 410617-1530, Kalkofnsvegi 2, 101, Reykjavík, óskaði með bréfi til Orkustofnunar, dagsettu 18. desember 2024, eftir virkjunarleyfi fyrir gufuaflsvirkjun á Folaldahálsi í Grímsnes- og Grafningshreppi, í samræmi við 1. mgr. 4. gr. raforkulaga, nr. 65/2003 og með vísan til 4. gr. reglugerðar um framkvæmd raforkulaga, nr. 1040/2005, með síðari breytingum.

Orkustofnun var lögð niður 31. desember 2024. Þann 1. janúar 2025 tók Umhverfis- og orkustofnun til starfa og tók stofnunin við verkefnum, réttindum og skyldum, eignum og skuldbindingum Orkustofnunar og þess hluta af starfsemi Umhverfisstofnunar er lýtur að umhverfis- og loftslagsmálum, sbr. 1. mgr. 7. gr. laga nr. 110/2024 um Umhverfis- og orkustofnun.

Í samræmi við 4. mgr. 34. gr. raforkulaga er þeim er málið varðar gefið færi á að kynna sér umsóknina og koma á framfæri sjónarmiðum sínum innan fjögurra vikna frá birtingu auglýsingarinnar í Lögbirtingarblaðinu.

Hlekk á umsóknina ásamt fylgigögnum má nálgast hér: https://skjol.uos.is/UOS2505081.

Skriflegum athugasemdum má koma á framfæri við Umhverfis- og Orkustofnun, Suðurlandsbraut 24, 108 Reykjavík, netfang uos@uos.is.

 

Við erum á samfélagsmiðlum

Facebook merki

Umhverfis- og orkustofnun

Rangárvellir 2, hús 8

603 Akureyri

Suðurlandsbraut 24

108 Reykjavík

Hafa samband

Netfang: uos@uos.isSími: 569 6000

Opið fyrir símtöl milli kl. 8:30 og 15 alla virka daga

Kennitala: 700924-1650

Persónuvernd og öryggi á vefnum