Til baka
26. maí 2025
Umsókn um virkjunarleyfi - stækkun Þeistareykjastöðvar
Auglýsing vegna umsóknar Landsvirkjunar um virkjunarleyfi til stækkunar Þeistareykjastöðvar í Þingeyjarsveit, úr 100 MWe í 180 MWe var birt í Lögbirtingarblaðinu þann 21. maí 2025.
Landsvirkjun, kt. 420269-1299, Katrínartúni 2, Reykjavík, óskaði með bréfi til Orkustofnunar, dagsettu 17. október 2024, eftir virkjunarleyfi til stækkunar Þeistareykjastöðvar í Þingeyjarsveit, í samræmi við 1. mgr. 4. gr. raforkulaga, nr. 65/2003 og með vísan til 4. gr. reglugerðar um framkvæmd raforkulaga, nr. 1040/2005, með síðari breytingum.
Orkustofnun var lögð niður 31. desember 2024. Þann 1. janúar 2025 tók Umhverfis- og orkustofnun til starfa og tók stofnunin við verkefnum, réttindum og skyldum, eignum og skuldbindingum Orkustofnunar og þess hluta af starfsemi Umhverfisstofnunar er lýtur að umhverfis- og loftslagsmálum, sbr. 1. mgr. 7. gr. laga nr. 110/2024 um Umhverfis- og orkustofnun.
Í samræmi við 4. mgr. 34. gr. raforkulaga er þeim er málið varðar gefið færi á að kynna sér umsóknina og koma á framfæri sjónarmiðum sínum innan fjögurra vikna frá birtingu auglýsingarinnar í Lögbirtingarblaðinu.
Hlekk á umsóknina ásamt fylgigögnum má nálgast hér: https://skjol.uos.is/UOS2504206/
Skriflegum athugasemdum má koma á framfæri við Umhverfis- og orkustofnun, Suðurlandsbraut 24, 108 Reykjavík, netfang uos@uos.is.