Umhverfis- og orkustofnun hefur veitt Orkuveitu Reykjavíkur - vatns- og fráveitu sf. leyfi til nýtingar á grunnvatni í landi Steindórsstaða, Borgarbyggð, í samræmi við 6. gr. laga um rannsóknir og nýtingu á auðlindum í jörðu, nr. 57/1998. Afmörkun nýtingarsvæðisins má finna í leyfinu hér fyrir neðan.
Ákvörðun Umhverfis- og orkustofnunar um útgáfu nýtingarleyfisins er kæranleg til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála innan eins mánaðar frá birtingu ákvörðuninnar skv. 2. mgr. 33 gr. auðlindalaga og sbr. 4 gr. laga nr. 130/2011 um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála.





