Umhverfis- og orkustofnun hefur veitt Hitaveitu Áshildarmýrar ehf. leyfi til nýtingar á jarðhita í landi Áshildarmýrar á Skeiðum, Skeiða- og Gnúpverjahreppi, í samræmi við 6. gr. laga um rannsóknir og nýtingu á auðlindum í jörðu, nr. 57/1998. Afmörkun nýtingarsvæðisins og nýtingarmagn má finna í leyfinu hér fyrir neðan.
Ákvörðun Umhverfis- og orkustofnunar um útgáfu nýtingarleyfisins er kæranleg til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála innan eins mánaðar frá birtingu ákvörðuninnar skv. 2. mgr. 33 gr. auðlindalaga og sbr. 4 gr. laga nr. 130/2011 um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála.





